7 ástæður fyrir því að velja gróft korn frekar en fínt eða mikið unnið korn.
- Heilkorn inniheldur mikilvæg næringarefni sem glatast í hreinsunarferlinu. Þú færð því meiri vítamín, steinefni og andoxunarefni í grófu korni.
- Heilkorn eru frábær uppspretta trefja sem bæta meltingu og draga úr líkum á hægðatregðu. Það er þó fleira sem hefur áhrif, m.a. vökvainntekt og hreyfing.
- Trefjarnar í heilkorni hægja á frásogi glúkósa og hjálpa til við blóðsykurstjórnun.
- Neysla á heilkornum er tengd minni hættu á hjartasjúkdómum, heilbrigðara kólesterólmagni og heilbrigðari blóðþrýstingi.
- Trefjarnar auka seddutilfinningu og geta þannig hjálpað til við þyngdarstjórnun.
- Bætir heilbrigði þarmaflóru sem hefur marga kosti fyrir heilsuna.
- Flókin kolvetni í heilkorni gefa þér orkuna hægt og örugglega, þannig að þú hefur betri og jafnari orku.
Hugmyndir að góðri næringu úr heilu korni

