Dásemd úr botni laufskógarins
Bjarnarlaukspestó
Innihald
10 stk bjarnarlaukur (1 stk er u.þ.b. 15 g)
15 g kasjúhnetur eða furuhnetur
12,5 g parmesanostur, rifinn
0,25 sítróna, safinn eingöngu
15 g ólífuolía
Salt og pipar
Leiðbeiningar
- Skolið bjarnarlaukinn vel og þerrið. Bæði stilkar og lauf eru notuð.
- Setjið allt í matvinnsluvél eða góðan blandara.
- Smakkið til með salti og pipar
- Berið fram með frækexi eða góðu brauði
Góð ráð
- Bjarnarlaukur vex í botni laufskóga og getur myndað gróðurþekju sem angar svipað og hvítlaukur. Bragðið minnir á graslauk og hvítlauk.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur


2 thoughts on “Bjarnarlaukspestó”