Ferskt og hollt meðlæti sem passar sérstaklega vel með kjöti
Waldorf salat að hætti Önnu Siggu
Fjöldi skammta
4
Innihald
100 g sellerí
1 epli (lífrænt)
1 pera (lífræn)
25 græn vínber
250 g sýrður rjómi
1 sítróna (bara safinn)
10 g valhnetur eða pekanhnetur
Leiðbeiningar
- Skerið sellerí, epli og peru í litla bita.
- Kreistið sítrónusafa yfir.
- Skerið vínber í tvennt.
- Hrærið sýrðum rjóma saman við.
- Blandið öllu saman og geymið í kæli í smá stund.
- Bætið valhnetum við salatið þegar það er borið fram.
Góð ráð
- Gott meðlæti með kjöti og fiski.
- Ég tek ekki hýði af epli og peru og vel þess vegna að kaupa það lífrænt.
- Það má bæti við smá hunangi ef þú vilt hafa Waldorf salatið þitt sætara.
- Smá skvetta af þeyttum rjóma gerir salatið mýkra og aðeins betra.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

