Hin fræga Cullen Skink súpa
Skosk fiskisúpa með reyktri ýsu
Servings
3
servingsInnihald
450 g reykt ýsuflök
1 lárviðarlauf
800 ml nýmjólk
30 g smjör
1 laukur
450 g kartöflur
150 ml rjómi
Salt
Svartur pipar
Fersk steinselja
Leiðbeiningar
- Setjið mjólkina á pönnu eða í stóran pott ásamt lárviðarlaufi.
- Leggið reykt ýsuflak í mjólkina og hitið rólega að suðu á tæplega miðlungshita.
- Látið malla í 5–7 mínútur (ekki sjóða kröftuglega).
- Takið fiskinn upp úr mjólkinni og geymið aðeins.
- Bræðið smjör í potti á vægum hita.
- Saxið lauk frekar smátt.
- Mýkið laukinn á vægum hita þar til hann verður glær og mjúkur.
- Skrælið kartöflur ef hýðið er ljótt, hafið annars á. Skerið kartöflur í litla teninga.
- Bætið kartöflubitum út í og hrærið í 1–2 mínútur.
- Hellið mjólkinni með reykjarbragðinu yfir lauk og kartöflur.
- Eldið í 10–12 mínútur eða þar til kartöflurnar eru mjúkar.
- Til að gera súpuna þykkari er gott að stappa hluta af kartöflunum með kartöflustappara eða gaffli.
- Skerið fiskinn í stóra, fallega bita, fjarlægið bein og roð.
- Setjið fiskbitana út í súpuna.
- Látið malla í 3–5 mínútur – ekki hræra mikið svo fiskurinn haldist heillegur.
- Bætið rjóma út í.
- Smakkið til með salti og pipar. Reykt ýsa gefur saltbragð svo líklega þarf frekar pipar en salt.
- Stráið ferskri steinselju eða graslauk yfir.
- Berið fram með góðu brauði og smjöri.
Góð ráð og fróðleikur
- Cullen er lítið sjávarþorp á norðausturströnd Skotlands þar sem fiskveiðar og reyking fisks hafa verið lífsviðurværi íbúanna í aldir. Þjóðarsúpa Skotlands, Cullen Skink, á rætur sínar í þessum hefðum. Upphaflega var þetta einföld súpa fátækra bænda og sjómanna, gerð úr því sem til fékkst: reyktum fiski, kartöflum og vatni. Orðið skink kemur úr gamalli kosku og vísaði upphaflega til beina sem notuð voru í soð, en þegar ýsan tók við af nautakjötsbeinum færðist hugtakið yfir á þykkar og matarmiklar súpur. Með tímanum batnaði aðgengi að hráefnum og súpan þróaðist í það sem við þekkjum í dag: þykka, kremkennda súpu þar sem reykt ýsa leikur aðalhlutverkið, kartöflur gefa fyllingu og mjólk, rjómi og smjör mýkja bragðið.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

