Grænmetispasta

0.0 from 0 votes

Mikið af grænmeti, lítið af pasta. Gott sem meðlæti.

Grænmetispasta

Grænmetispasta

0.0 from 0 votes
Fjöldi skammta

1

Gott meðlæti með kjöti eða fiski

Innihald

  • 100 g sveppir

  • 150 g paprika

  • 50 g vorlaukur

  • 100 ml vatn

  • 5 g kjúklingakraftur

  • 75 g soðið heilhveitipasta

  • salt og pipar

  • 10 g parmesan ostur

Leiðbeiningar

  • Skerið sveppi í sneiðar
  • Skerið papriku og vorlauk í strimla
  • Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum (al dente)
  • Leysið kjúklingakraftinn upp í vatninu og hitið að suðu
  • Setjið grænmetið í kjúklingasoðið og leyfið því að malla í 5-10 mínútur
  • Hellið soðinu af grænmetinu
  • Blandið saman soðnu pasta og heitu grænmeti
  • Rífið parmesan ost yfir

Góð ráð

  • Gott meðlæti með kjöti og fiski
  • Það má nota hvítan lauk, blaðlauk eða fennel í stað vorlauks
  • Það má nota ferskan grænan aspas í stað papriku
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur


Related Posts

Chili sin Carne af bestu gerð

Chili sin Carne af bestu gerð

Notalegur grænmetispottréttur á köldu kvöldi

Ítalskur pottréttur

Ítalskur pottréttur

Ferskur og góður pottréttur


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading