Velkomin á vefsíðuna mína!
Hér finnur þú fjölbreyttar uppskriftir og fræðslu um heilbrigði og lífsstíl.
Ég heiti Anna Sigríður Vernharðsdóttir og er hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir og heilsumarkþjálfi.
Markmið mitt er að deila einföldum, hollum og bragðgóðum uppskriftum sem styðja við heilbrigðan lífsstíl – og gleðja bragðlaukana.
Á síðunni finnur þú uppskriftir og heilsumola sem hjálpa þér að velja góðan kost í mataræði og lífsstíl.

Uppskriftaflokkarnir þrír
- Flestar uppskriftirnar eru í flokknum GÓÐUR KOSTUR. Hollir og bragðgóðir réttir úr hreinum og góðum hráefnum. Þessar uppskriftir eru í takt við almennar ráðleggingar um hollt mataræði og henta vel í daglegu lífi.
- Uppskriftirnar í flokknum VEISLUKOSTUR henta vel þegar gera á vel við sig og sína eða halda veislu. Hér er líka unnið með hrein og góð hráefni, en stundum er notuð meiri fita eða viðbættur sykur til að skapa hátíðlegt bragð.
- Í flokknum SÍGILDUR KOSTUR eru klassískar fjölskylduuppskriftir sem hafa fylgt mér og minni fjölskyldu í gegnum árin, eiga alltaf sinn stað á borðinu og mega ekki gleymast.