Ferskur og góður pottréttur
Ítalskur pottréttur
Fjöldi skammta
1
Ferskur og góður pottréttur.
Innihald
170 g nautagúllas
Olía til steikingar
100 g laukur
100 g paprika
1 hvítlauksrif
100 g tómatar úr dós
100 g gulrætur
0,5 stk sítróna (safi)
0,5 stk sítróna (börkurinn)
2 dl vatn
Fersk basilíka eða kóríander
Salt og pipar
Leiðbeiningar
- Skerið gúllas í munnbitastærð.
- Brúnið kjötið í nokkrar mínútur á þurri pönnu, geymið.
- Skerið lauk, papriku og gulrætur í þunnar sneiðar.
- Setjið olíu í pott á miðlungshita og mýkið lauk, papriku og gulrætur í nokkrar mínútur.
- Pressið hvítlauksrif og bætið út í pottinn.
- Setjið tómata, vatn, sítrónubörk og sítrónusafa út í.
- Setjið kjötið saman við og sjóðið í u.þ.b. 10-15 mínútur, eða þar til kjötið er soðið. Má alveg sjóða lengur.
- Smakkið til með salti og pipar.
- Bætið við ferskri basilíku eða kóríander þegar búið er setja á diska.
Góð ráð
- Það má nota nýrnabaunir í staðinn fyrir kjöt eða minnka kjöt og hafa baunir með.
- Það má nota fennel eða sellerí í staðinn fyrir lauk.
- Gott að bera fram með kartöflum, hrísgrjónum og/eða góðu brauði.
- Þessi réttur passar líka vel með þessari kartöflu- og sellerírótarstöppu
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur


3 thoughts on “Ítalskur pottréttur”