Trefjaríkt, próteinríkt og fullt af Omega-3 fitusýrum
Morgunkorn Önnu Siggu
Gott að eiga þetta klárt í krukkunni og fá sér á hverjum morgni
Innihald
200 g gróft haframjöl, t.d. tröllahafrar
100 g chia fræ
50 g graskersfræ
40 g sesamfræ
50 g hampfræ
3 msk kanill (Ceylon) – má vera meira eða minna
Leiðbeiningar
- Öllu blandað saman í góða krukku og hrist saman.
Góð ráð
- Gott að borða með fjörmjólk, hampmjólk eða möndlumjólk. Best að leyfa þessu að liggja í mjólkinni í a.m.k. 20 mínútur eða í ísskáp yfir nótt. Bæta svo berjum, eplum eða öðrum ávöxtum út í rétt áður en maður borðar.
- Ceylon kanill inniheldur miklu minna af efninu kúmarín en hefðbundinn kanill (Cassia). Kúmarín getur verið skaðlegt fyrir lifrina ef þess er neytt í of miklu magni. Ceylon kanill er líka bragðmeiri, betri og oftast meiri gæðavara en hinn hefðbundni kanill (Cassia). Það er því öruggara að skipta yfir í Ceylon kanil, sérstaklega fyrir þá sem borða mikið af kanil.
- Hver skammtur (30 g) inniheldur um 6 g af prótein og 6 grömm af trefjum.
- Hvaða mjólk ætti að velja? Það fer eftir því hverju þú ert að sækjast eftir.
Þessi samanburður miðast við þína eigin möndlumjólk og þína eigin hampmjólk.
Fjörmjólk inniheldur hæsta hlutfallið af próteinum (4,4 g pr 100 ml), svo kemur hampmjólkin (3,75 g pr 100 ml) og síðast möndlumjólkin (2,1 g pr 100 ml).
Möndlumjólkin inniheldur meiri trefjar en hampmjólk en engar trefjar eru í fjörmjólk.
Hempmjólkin er orkuríkust (71 kcal pr 100 ml), svo kemur möndlumjólkin (58 kcal pr 100 ml) og orkuminnst er Fjörmjólkin (32 kcal pr 100 ml).
Það er mest af kalki í Fjörmjólk (141 g pr 100 ml), 70 g pr 100 ml í Hempmjólk og 25 g í möndlumjólk. - Möluð hörfræ passa líka vel með þessu morgunkorni en það er betra að geyma þau í ísskápnum.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur


4 thoughts on “Morgunkorn Önnu Siggu”