Rauðrófusalat með eplum og salatosti

4.5 from 2 votes

Geggjuð samsetning sem smellur vel saman.

Rauðrófusalat

Rauðrófusalat

4.5 from 2 votes
Fjöldi skammta

1

Innihald

  • 150 g rauðrófur

  • 35 g klettasalat

  • 50 g salatostur (ostakubbur)

  • 1 epli, lífrænt ræktað

  • 10 ml ólívuolía

  • 10 ml balsamik edik

  • 15 g fersk basilíka

  • 10 g pekanhnetur eða valhnetur

Leiðbeiningar

  • Hitið ofinn í 200° C.
  • Bakið rauðrófurnar í heilu lagi í ofnskúffu í u.þ.b. 90 mínútur eða þar til þær eru mjúkar að innan (hægt að kanna með því að stinga hníf í rauðrófuna).
  • Kælið undir rennandi vatni og afhýðið.
  • Skerið rauðrófu í teninga og setjið í salatskál.
  • Skolið epli og kjarnhreinsið. Skerið í teninga og blandið saman við rauðrófur.
  • Blandið saman ólívuolíu og balsamik ediki. Hellið yfir rauðrófur og epli.
  • Blandið klettasalati og ferskri basiliku saman við.
  • Skerið salatost í litla bita og bætið út í.
  • Saxið hnetur gróft og bætið út í.

Góð ráð og fróðleikur

  • Það er hægt að kaupa rauðrófurnar eldaðar. Þær eru þá oftast í grænmetiskælinum, pakkaðar í lofttæmdar umbúðir.
  • Einn skammtur hentar sem full máltíð fyrir einn en sem meðlæti fyrir fleiri.
Instagram

Góður kostur er á Instagram

Góður kostur er hér @godur_kostur og notar myllumerkið #godurkostur

Facebook

Góður kostur er með Facebook síðu

Þú finnur síðuna hér Góður kostur

Dásamlega hollt og gott


Related Posts

Þín eigin möndlumjólk

Þín eigin möndlumjólk

Það verður ekki aftur snúið…

Morgunkorn Önnu Siggu

Morgunkorn Önnu Siggu

Trefjaríkt, próteinríkt og fullt af Omega-3 fitusýrum


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading