Frækex með parmesan osti

5.0 from 1 vote

Þetta er sennilega besta frækexið…

Frækex með parmesan osti

Frækex með parmesan osti

5.0 from 1 vote
Bökunarplata

1

Þessi uppskrift passar á eina bökunarplötu.

Innihald

  • 150 g fræ að eigin vali, t.d. blanda af sólblómafræjum, sesamfræjum, graskersfræjum, chiafræjum og hörfræjum

  • 0,5 tsk salt

  • 25 g fínt rifinn góður parmesan ostur

  • 130 ml vatn

  • 2 msk olívuolía

  • 1 egg

Leiðbeiningar

  • Blandið öllum innihaldsefnum saman í skál.
  • Látið bíða í 20 mínútur. Deigið á að vera eins og meðalþykkur grautur.
  • Kveikið á ofninum, stillið á 160°C blástur.
  • Dreifið deiginu á bökunarplötu með bökunarpappír, eins þunnt og mögulegt er. Mér finnst best að leggja annan bökunarpappír yfir og þrýsta ofan á hann með höndum. Svo er bara að fjarlægja efri pappírinn varlega.
  • Bakið í u.þ.b. 10 mínútur, takið þá aðeins út úr ofninum til að marka stærð kexins. Það er best að gera með því að þrýsta stóru hnífsblaðinu ofan í deigið en helst ekki að draga það eftir deginu. Ef þetta er gert er hægt að brjóta kexið auðveldlega þegar það er tilbúið.
  • Bakið áfram í 20-30 mínútur í viðbót en fylgist með vel með því parmesanosturinn má alls ekki brenna.
  • Látið kólna.

Góð ráð

  • Það má nota annars konar ost t.d. sterkan gouda ost.
  • Ef þú vilt ekki nota ost þá má nota næringarger í staðinn.
  • Þetta frækex er líka mjög gott án osts en þá er gott að hafa 1 tsk af salt í staðinn fyrir hálfa.
  • Það má nota hveitikím sem hluta af fræjum, kannski 10-20 g, það þykkir blönduna.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur


Related Posts

Þín eigin möndlumjólk

Þín eigin möndlumjólk

Það verður ekki aftur snúið…

Morgunkorn Önnu Siggu

Morgunkorn Önnu Siggu

Trefjaríkt, próteinríkt og fullt af Omega-3 fitusýrum


1 thought on “Frækex með parmesan osti”

Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading