Fullkomið með nýbökuðu brauði.
Þeytt smjör með sjávarsalti
Innihald
125 g ósaltað smjör (við stofuhita)
125 g ósaltað smjör til að bræða
1 tsk sjávarsalt (flögusalt)
Leiðbeiningar
- Byrjum á því að bræða smjör. Settu smjörið sem á að bræða í pott. Best er að nota pott með ljósum eða ryðfríum botni svo þú sjáir betur þær litabreytingar sem verða við bráðnunina.
- Bræddu smjörið á rúmlega miðlungshita. Fljótlega fer smjörið að freyða og síast í tvennt. Þú sérð gyllta glansandi fitu og smá hvíta froðu á yfirborðinu. Eftir 5–7 mínútur (fer eftir hita og magni) fer smjörið að brúnast. Þá er hægt að sjá litlar brúnar agnir sökkva í botninn og ilmurinn breytist og minnir á kex eða eða ristaðar hnetur. Þegar liturinn er að nálgast það að vera dökkbrúnn er rétti tíminn til að taka pottinn af hitanum.
- Þar sem smjörið heldur áfram að brúnast í heitum pottinum er gott að hella smjörinu strax í annað ílát, t.d. glerskál. Mikilvægt að skafa upp brúnu agnirnar því þær eiga eftir að gefa þeytta smjörinu svo gott bragð. Nú þarf brædda smjörið að ná stofuhita og gott að gefa því nokkrar klukkustundir til þess.
- Þegar brædda smjörið er að ná stofuhita getur þú byrjað að þeyta hinn hlutann af smjörinu.
Þeyttu í 3–5 mínútur þar til það verður létt og mjúkt. - Bættu brúnaða smjörinu saman við smjörið sem er að þeytast og haltu áfram að þeyta þar til það hefur blandast vel saman og komin létt áferð á smjörið. Þetta getur tekið um 10 mínútur.
- Bættu sjávarsalti við og hrærðu saman í lokin.
Góð ráð
- Geymist í kæli í lokuðu íláti í u.þ.b. viku. Gott að taka út áður en það er borið fram til að hafa það mjúkt. Áferðin breytist samt aðeins við það að setja í kæli svo ef það er ætlunin að nota smjörið á næstu dögum er bara betra að geyma það við stofuhita.
- Það má leika sér með að bragðbæta smjörið t.d. er hægt að bæta við smá sítrónuberki (bara ysta lagið), pressuðum hvítlauk, ferskum kryddjurtum eða pipar.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

