Persónuverndarstefna

Anna Sigríður Vernharðsdóttir, rekur vefsíðuna godurkostur.is þar sem hægt er að finna uppskriftir og heilsumola.

Það er mikilvægt að þú lesir og skiljir persónuverndarstefnuna þar sem hún útskýrir hvernig persónuupplýsingar frá þér eru notaðar.

Fyrst og fremst nota ég persónuupplýsingar frá þér til að bæta þá þjónustu sem er í boði. Ég mun hvorki nota né deila upplýsingum frá þér með neinum, nema með þeim hætti sem lýst er í þessari persónuverndarstefnu.

Ábyrgðaraðili

Þegar þjónustan er notuð kann Anna Sigríður Vernharðsdóttir að vinna með persónuupplýsingar frá þér og ber hún ábyrgð á þeirri vinnslu. Öll vinnsla persónuupplýsinga fer fram í samræmi við persónuverndarlög á hverjum tíma, sbr. nú lög nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. einnig reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga og niðurfellingu tilskipunar 95/46/EB (almenna persónuverndarreglugerðin).

Hvaða persónuupplýsingum er safnað og hvernig eru þær notaðar?

Fyrirspurnir

Ég safna upplýsingum um nafn, netfang og öðrum persónulegum upplýsingum sem þú gefur mér í gegnum tölvupóst, eða á samfélagsmiðlum þegar þú hefur samband og óskar eftir upplýsingum frá mér. Ég nota þessar upplýsingar til svara fyrirspurnum frá þér.

Tæknilegar upplýsingar og skráningargögn

Ég safna tæknilegum upplýsingum um snjalltæki og tölvu. Ég safna einnig skráningargögnum, þ.e. þeim upplýsingum sem vafri þinn sendir þegar þú heimsækir vefsíðuna mína. Þessi skráningargögn geta falið í sér upplýsingar um IP-tölu, tegund vafra, útgáfu vafra, síður sem þú heimsækir, tíma og dagsetningu heimsóknar, lengd tíma sem þú varðir á síðum og önnur talnagögn. Ég get notað þessar upplýsingar til að bæta þjónustu, vefsíðu og samskipti, sérsníða þjónustu að þínum þörfum og til að gera markaðsrannsóknir.

Vafrakökur (e. Cookies)

Vafrakökur eru litlar textaskrár sem eru vistaðar á tölvunni þinni eða snjalltækjum sem þú notar til að heimsækja vefsíðu í fyrsta sinn. Þær gera það að verkum að vefsíðan man eftir þér og hvernig þú notaðir síðuna í hvert sinn sem þú heimsækir hana aftur. Vafrakökur innihalda ekki persónuupplýsingar á borð við nafnið þitt, netfang, símanúmer eða kennitölu en þær geta hinsvegar innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar.

Ég nota vafrakökur til að bæta viðmót vefsíðunnar og til að fylgjast með og greina notkun hennar. Tilgangur þess að safna saman þessum upplýsingum er að bæta þjónustu við þig og til að þróa og endurbæta vefsíðuna.

Þú getur stillt vafrann þinn þannig að hann slökkvi á öllum vafrakökum, takmarki notkun þeirra eða gefi til kynna þegar þær eru sendar. Flestir vafrar eru með hjálparmöguleikum sem veita upplýsingar um hvernig eigi að slökkva á vafrakökum, takmarka notkun þeirra eða hvernig vafrinn gerir þér viðvart þegar þú færð senda nýja vafraköku. Slíkar breytingar geta dregið úr aðgengi á tilteknum síðum á vefsíðunni eða vefsíðunni í heild sinni.

Ef þú slekkur á vafrakökum getur þú farið á mis við þjónustu sem ég veiti og því mæli ég með að þú hafir kveikt á þeim.

Flutningur gagna til þriðja aðila

Ég deili ekki og mun aldrei deila upplýsingum frá þér gegn greiðslu til þriðja aðila. Ég gæti notast við þriðja aðila til að gera þjónustuna notendavænni, til að veita þjónustu fyrir mína hönd eða til að greina hvernig þjónustan er notuð.

Dæmi um þriðja aðila sem ég kann að flytja gögn til:

  • Tækniþjónustufyrirtæki s.s. hýsingaraðili vefsíðu

Þeir þriðju aðilar sem ég vinn með hafa eingöngu aðgang að persónuupplýsingum þínum til að vinna þessi verk fyrir mína hönd og er óheimilt að afhenda þær eða nota í nokkrum öðrum tilgangi. Vinnsluaðilar fá eingöngu þær persónuupplýsingar sem eru nauðsynlegar fyrir þá og eru bundnir samningi um að halda upplýsingum öruggum. Að auki má vera að ég miðli persónuupplýsingum frá þér til opinberra aðila ef þess er krafist með lögum.

Þriðju aðilar og samfélagsmiðlar

Ég ber ekki ábyrgð á persónuverndarstefnu þriðju aðila jafnvel þótt þú tengist þeim í gegnum vefsíðuna mína. Ég mæli með því að þú kynnir þér persónuverndarstefnu hvers og eins þriðja aðila sem þú tengist í gegnum vefsíðuna mína. Þetta á t.d. við um eftirfarandi samfélagsmiðla (en er ekki takmarkað við), Facebook, Instagram, Youtube, Twitter, Pinterest og Linkedin. Ég ber heldur ekki ábyrgð á persónuverndarstefnum annarra fyrirtækja sem þú tengist í gegnum vefsíðuna mína og ég mæli með að þú kynnir þér persónuverndarstefnu hvers fyrirtækis fyrir sig.

Samskipti og markaðssetning

Það skiptir miklu máli fyrir mig að veita góða þjónustu og því getur verið að ég hafi samband við þig til að leita álits varðandi þjónustuna. Ég gæti líka að nota persónuupplýsingar til að hafa samband með fréttabréfi, könnunum, markaðs- og kynningarefni og hvers konar upplýsingum sem ég tel að þú hafir áhuga á.

Varðveisla persónuupplýsinga

Ég leitast alltaf við að hafa persónuupplýsingar þínar réttar og áreiðanlegar. Ég geymi persónuupplýsingar aðeins eins lengi og þörf krefur og í samræmi við þann tilgang sem þeim var safnað, þ.m.t. laga- og bókhaldsskyldu.

Þín réttindi

Þú hefur rétt á því að fá aðgang að og upplýsingar um vinnsluna á persónuupplýsingum um þig sem geymdar eru hjá mér. Þú hefur einnig rétt til að leiðrétta persónuupplýsingar um þig ef þær eru rangar. Hafðu samband við mig á annasigga@me.com ef þú vilt fá aðgang eða upplýsingar um þínar persónuupplýsingar. Ef þú ert óánægð(ur) með vinnslu mína á þínum persónuupplýsingum þá geturðu lagt inn kvörtun til persónuverndaryfirvalda þar sem þú hefur fasta búsetu.

Persónuvernd barna

Aðeins einstaklingar 18 ára eða eldri hafa leyfi til að nota þjónustuna mína.

Breytingar á persónuverndarstefnu

Ég áskil mér rétt til að breyta eða uppfæra persónuverndarstefnu minni hvenær sem er og ég hvet þig til að skoða hana reglulega. Þessi persónuverndarstefna var síðast endurskoðuð 3. október 2022.

Hafðu samband

Ef þú hefur spurningar varðandi þessa persónuverndarstefnu eða vilt nota þau réttindi sem lýst er í henni, hafðu þá samband við mig með því að senda tölvupóst á annasigga@me.com