Frábært meðlæti með kjöti
Geggjaðar gulrætur
Fjöldi skammta
1
Innihald
200 g gulrætur (gaman að hafa marga liti)
10 g ólívuolía
5 g hunang (veldu gott fljótandi gæðahunang)
Salt
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 180° C
- Skolið og burstið gulrætur
- Skerið í fallegar lengjur
- Blandið saman olíu, hunangi og smá salti
- Veltið gulrótunum upp úr blöndunni
- Setjið í eldfast mót eða á bökunarpötu
- Bakið í ofni við 180° C í 30-50 mínútur
Góð ráð
- Passar mjög vel með nautakjöti og lambakjöti
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

