Létt, sætt og gott
Salat með granateplum og vínberjum
Fjöldi skammta
1
Innihald
100 g blandað grænt og rautt blaðgrænmeti
50 g granateplakjarnar
50 g vínber
5 g furuhnetur
10 g ólívuolía
10 g gott balsamik edik
Leiðbeiningar
- Raðið blaðgrænmeti á disk
- Skerið vínber í tvennt og dreifið yfir grænmetið
- Stráið granateplakjörnum yfir
- Hellið olíu og balsamik ediki yfir
- Stráið hnetum og fræjum yfir
Góð ráð
- Til að ná granateplakjörnunum úr á sem auðveldasta hátt er best að skera granateplið í nokkra báta. Gott að byrja á því að skera granateplið í tvennt og skera svo í eins marga báta og hvítu línurnar sýna. Fylltu stóra skál af vatni og taktu granateplið í sundur ofan í vatninu með því að nudda kjarnana úr. Kjarnarnir eru þungir og munu sökkva í botn skálarinnar en hvíta skinnið er létt og mun fljóta. Fjarlægðu skinnið og helltu vatninu og fræjunum úr skálinni í sigti og þú endar með fallega skál af granateplakjörnum.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

