Borðaðu sem mest af hreinni og óunninni fæðu
Með því að velja sem oftast hreina, óunna fæðu ertu að leggja vel inn í heilsubankann þinn. Líkaminn fær nauðsynleg næringarefni, þarmaflóran og meltingin verða í betra jafnvægi, blóðsykurstjórnun verður betri og það er auðveldara að viðhalda heilbrigðri þyngd. Með því að borða oftar hreina og óunna fæðu getur þú dregið úr hættu á langvinnum sjúkdómum.
Ef þú borðar mikið af unnum matvælum í dag þá er þetta breyting sem getur skilað verulegum ávinningi fyrir þína heilsu. Hvernig væri að snúa dæminu við og láta fæðuna lækna þig frekar en að hún beinlínis ýti undir sjúkdóma og vanlíðan?
Hrein og óunnin fæða
- Er næringarríkarríkari og inniheldur meira af vítamínum, steinefnum og andoxunarefnum. Unnin fæða missir oft næringargildi við framleiðslu.
- Er betri fyrir meltinguna. Mörg unnin matvæli innihalda aukefni, rotvarnarefni og litarefni sem geta truflað náttúrulegt jafnvægi þarmaflórunnar á meðan ávextir, grænmeti, baunir og heilkorn innihalda trefjar sem styðja við góða meltingu.
- Inniheldur minna af óhollri fitu, salti og sykri sem hjálpar til við að viðhalda heilbrigðri líkamsþyngd. Unnin fæða er líka oft gerð mjög aðgengileg fyrir neytandann þannig að auðvelt er að borða mikið magn af orkuríkri fæðu á stuttum tíma.
- Styður við góða blóðsykurstjórnun. Fæða sem inniheldur mikið af viðbættum sykri og einföldum kolvetnum veldur meiri sveiflum á blóðsykri. Með betri blóðsykurstjórnun nærð þú betri einbeitingu, getur afkastað meiru og skapið verður betra.
- Styður við náttúruleg varnarkerfi líkamans og hefur verið tengd minni hættu á langvinnum sjúkdómum.
Góður kostur er flokkur uppskrifta sem byggir á almennum ráðleggingum. Góður kostur er fjölbreytt fæða úr öllum fæðuflokkum með áherslu á hreina, óunna fæðu, mikið grænmeti, ávexti, grófar kornvörur og holla fitu.
Dæmi um unna fæðu og hreinni fæðu sem hægt er að borða í staðinn
- Unnar kjötvörur s.s. pylsur og beikon
- Góður kostur: hreinar kjötvörur án aukaefna jafnvel beint frá býli
- Morgunkorn úr pakka
- Góður kostur: hafragrautur eða morgunkorn með blöndu af höfrum og fræjum.
- Pizza úr búð eða á veitingastað
- Góður kostur: Heimagerð pizza með hollu áleggi
- Mjólkurvörur með sykri og bragðefnum
- Góður kostur: Hreinar mjólkurvörur með ferskum ávöxtum eða heimagerðu múslí.
- Gosdrykkir og ávaxtasafar
- Góður kostur: Hreint vatn eða sódavatn með niðurskornum ávöxtum
- Sælgæti
- Góður kostur: Niðurskornir ávextir, hnetur, fræ og þurrkaðir ávextir
- Franskar kartöflur
- Góður kostur: Sætar kartöflur bakaðar í ofni
- Kex og kökur
- Góður kostur: Heimabakað frækex, hrökkbrauð og kökur úr hreinum hráefnum
Þú getur fundið fullt af fleiri girnilegum uppskriftum hér.

