Ekta danskt rúgbrauð, einfalt, hollt og einstaklega gott
Gróft súrdeigsrúgbrauð
Brauð
1
stkEin uppskrift passar í 1,2 lítra form.
Innihald
- Daginn áður en brauðið er bakað
130 g sprækur súr (ég nota súr úr rúgmjöli)
260 ml vatn
75 g skornir rúgkjarnar
20 g graskersfræ
30 g hörfræ
20 g sólblómafræ
10 g sesamfræ
1 msk kúmen (má sleppa)
- Bökunardagur
2 tsk salt
Rúgmjöl (fyrir eitt brauð þarf u.þ.b. 170-200 g en getur verið meira eða minna)
Graskersfræ eða önnur fræ til að setja í botninn á forminu (fyrir eitt brauð þarf um 70 g af fræjum en mikilvægt er að fræin hylji alveg botninn á forminu)
Leiðbeiningar
- Daginn áður en brauðið er bakað
- Súr, vatn, skornir rúgkjarnar, fræ og kúmen eru sett í skál. Blandið saman með skeið.
- Hyljið skálina með því að leggja disk ofan á eða breiða klút yfir, ekki loka þétt.
- Látið hefast við stofuhita í 12-24 tíma, allt eftir því hvað hentar.
- Bökunardagur
- Bætið salti og rúgmjöli í skálina.
- Hrærið saman með skeið. Deigið á að vera seigt en samt þannig að hægt sé að hræra það með skeið með annarri hendi.
- Hellið fræjum í botninn á forminu. Hér er hægt að leika sér. Einfaldast er að setja bara graskersfræ en það má líka setja sólblómafræ og hörfræ.
- Setjið deigið ofan á fræin í forminu og sléttið með skeið eða sleikju.
- Breiðið klút yfir formið og látið hefast í u.þ.b. 4 tíma. Brauðið ætti að lyftast um 30% á 4 tímum en það fer eftir því hversu góður súrinn er. Það er í góðu lagi að leyfa brauðinu að hefast lengur en mögulegt að það fari að falla aftur ef of langur tími líður.
- Bakið við 180°C hita á blæstri í 65-70 mínútur.
- Takið brauðið út og losið það fúr forminu með því að hvolfa forminu á grind. Það ætti að detta auðveldlega úr forminu þannig.
- Látið brauðið kólna alveg á grind áður en það er skorið.
Góð ráð
- Fræin sem detta af brauðinu eftir bakstur má nota út á salöt eða í morgungrautinn.
- Brauðið bragðast best þegar það er nýbakað en búið að kólna alveg. Það er hægt að skera það í sneiðar og geyma í frysti ef það klárast ekki strax.
- Það má nota skorna heila hafra í stað rúgkjarna.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur


1 thought on “Gróft súrdeigsrúgbrauð”