Nautapottréttur frá Búrgundarhéraði

0.0 from 0 votes

Dásamlegur vetrarmatur sem er gaman í borða í góðra vina hópi

Nautapottréttur frá Búrgundarhéraði

Nautapottréttur frá Búrgundarhéraði

0.0 from 0 votes
Fjöldi skammta

8

Innihald

  • Góð olía til steikingar

  • 1200 g nautagúllas eða annað nautakjöt í bitum

  • 250 g beikon

  • 2 stk laukur

  • 6 rif hvítlaukur

  • 500 g gulrætur

  • 200 g sellerí

  • 750 ml gott þurrt rauðvín (þarf ekki að vera dýrt en verður að vera gott)

  • 4 msk tómatmauk (tómatpúrra)

  • 20 g nautakraftur

  • 5 lárviðarlauf

  • 500 ml vatn (mögulega aðeins minna)

  • 4 ferskar tímían greinar (eða þurrkað tímían)

  • Smjör til steikingar

  • 500 g sveppir

  • 10 litlir laukar t.d. perlulaukar eða skalottlaukar

  • Fersk steinselja

  • Salt

  • Nýmalaður pipar

Leiðbeiningar

  • Takið til stóran pott og góða pönnu.
  • Hitið olíu á pönnu og brúnið kjötið. Stráið smá salti og nýmöluðum pipar yfir á meðan kjötið er á pönnunni.
  • Saxið beikon og bætið út á pönnuna og leyfið því að eldast með kjötinu.
  • Skerið lauk frekar smátt og mýkið í olíu í potti í smá stund.
  • Pressið hvítlauksrif og bætið út í pottinn.
  • Skerið gulrætur í sneiðar, bætið í pottinn og leyfið þeim að mýkjast þar í smá stund.
  • Skerið sellerí í sneiðar, bætið í pottinn og leyfið að mýkjast þar í smá stund.
  • Bætið nú kjöti og beikoni saman við grænmetið í pottinum.
  • Nú ertu kominn með kjöt, beikon, lauk, hvítlauk, gulrætur og sellerí í pottinn.
  • Næst er að bæta við rauðvíni, vatni og kjötkrafti. Gott að leysa kjötkraftinn upp í hluta af vatninu og hella út í pottinn. Mögulega þarf ekki svona mikið vatn. Vökvinn á bara rétt að ná yfir kjötið og grænmetið.
  • Bættu við tómatmauki, lárviðarlaufum og tímían og leyfðu þessu að malla í svona 1-2 tíma eða þar til kjöt og grænmeti er orðið vel meyrt. Þetta má alvega malla í lengri tíma á hægum hita.
  • Á meðan getur þú undirbúið lauk og sveppi fyrir steikingu.
  • Ef þú ert með litla lauka s.s. perlulauka er gaman að hafa þá bara heila en ef þú ert með stærri lauka s.s. skallottlauka þá gæti verið gott að skera þá í 2-4 hluta.
  • Sveppir eru skornir í 2 hluta eða þykkar sneiðar ef þeir eru stórir.
  • Þegar kjöt og grænmeti er orðið meyrt er komið að því að mýkja litlu laukana eða laukbitana í smjöri. Gott að leyfa lauknum að mýkjast í smjörinu í 10-15 mínutur, þess vegna lengur. Að lokum má hækka hitann og bæta sveppunum á pönnuna og steikja þá. Bætið við smjöri á pönnuna ef þarf.
  • Bætið steiktum sveppum og lauk út í pottinn og smakkið til með salti og nýmöluðum svörtum pipar.
  • Klippið ferska steinselju yfir pottréttinn í pottinum eða á hvern disk.
  • Berið fram með góðri kartöflustöppu eða kartöflu- og sellerírótarstöppu.

Góð ráð og fróðleikur

  • Það passar mjög vel að fá sér glas af rauðvíni með þessum dásamlega pottrétti, t.d. gott Piont Noir frá Búrgundarhéraði.
  • Það er gott að bera fram gott snittubrauð til að dýfa í sósuna.
Instagram

Góður kostur er á Instagram

Góður kostur er hér @godur_kostur og notar myllumerkið #godurkostur

Facebook

Góður kostur er með Facebook síðu

Þú finnur síðuna hér Góður kostur


Related Posts

Þín eigin möndlumjólk

Þín eigin möndlumjólk

Það verður ekki aftur snúið…

Morgunkorn Önnu Siggu

Morgunkorn Önnu Siggu

Trefjaríkt, próteinríkt og fullt af Omega-3 fitusýrum


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading