Einfaldur og næringarríkur grautur með náttúrulegri sætu
Grautur úr bankabyggi með eplum, perum og kanil
4
skammtarNærandi og mettandi morgunmatur sem heldur þér gangandi langt fram eftir degi. Hér fær bankabygg að njóta sín með ferskum ávöxtum og kanil. Rúsínur, fræ og möndlur bæta bæði áferð og næringargildi og gera þennan graut að fullkominni byrjun á deginum.
Innihald
90 g bankabygg
600 ml vatn
25 g rúsínur
30 g fræ t.d. sólblómafræ, hörfræ, graskersfræ
1 epli
1 pera
30 g möndlur eða blanda af möndlum og hnetum
1 msk kanill (ceylon)
0,5 tsk salt
Leiðbeiningar
- Setjið bankabygg, rúsínur, fræ, salt, kanil og vatn í pott og látið suðuna koma upp.
- Á meðan suðan er að koma upp, skerið epli og peru í hæfilega bita og bætið út í pottinn.
- Saxið möndlur gróft og setjið saman við.
- Þegar suðan kemur upp, lækkið hitann og látið grautinn malla í um 25 mínútur, eða þar til byggið er orðið mjúkt.
- Hrærið í öðru hverju.
- Berið grautinn fram heitan með mjólk eða rjóma að eigin vali. Gott að toppa með ferskum berjum og ristuðum kókosflögum.
Góð ráð og fróðleikur
- Það er líka hægt að útbúa kalda útgáfu af þessum graut. Látið grautinn malla í 15–20 mínútur.
Slökkvið undir pottinum, setjið lokið á og látið hann standa í nokkra klukkutíma, til dæmis yfir nótt.
Grauturinn þykknar áfram og verður tilbúinn til að borða kaldur.
Bragðast mjög vel með mjólk eða rjóma og ferskum berjum s.s. hindberjum eða bláberjum. - Ceylon kanill inniheldur aðeins minna magn af efninu kúmarín en hefðbundinn kanill (Cassia). Kúmarín er náttúrulegt efni sem getur haft skaðleg áhrif á lifrina ef þess er neytt í miklu magni til lengri tíma.
Ceylon kanill er einnig með mildara og flóknara bragð og telst vera meiri gæðavara. Fyrir þá sem nota mikið af kanil – til dæmis í morgungraut, smoothies eða bakstur – er öruggara og skynsamlegra að velja Ceylon kanil. - Rabbarbaramauk passar mjög vel með þessum graut.
Góður kostur er á Instagram
Góður kostur er hér @godur_kostur og notar myllumerkið #godurkostur
Góður kostur er með Facebook síðu
Þú finnur síðuna hér Góður kostur

