Fullt af grænmeti og geggjuð pizzasósa
Grænmetispizza a la Góður kostur
Einn skammtur = 12 tommu pizza
1
Sjóðheit og eldbökuð
Pizza botn
50 ml volgt vatn
1 msk ólívuolía
2 g þurrger
3 g salt
50 g pizzahveiti
40 g heilhveiti
Meira hveiti ef þarf
- Ofan á pizzuna
100 g „Þín eigin pizzasósa“
25 g rifinn hvítlaukskryddostur
60 g kirsuberjatómatar t.d. piccolotómatar
60 g grilluð paprika
25 g rifinn ostur
- Fer ofan á eftir að pizzan er bökuð
Fersk basilíka og/eða annað grænt salat, t.d. klettasalat
Leiðbeiningar
- Setjið helminginn af volga vatninu í stóra skál ásamt olíu og salti.
- Setjið hinn helminginn af volga vatninu í glas og blandið þurrgeri út í. Látið standa þar til gerið fer að freyða aðeins. Þetta getur tekið u.þ.b. 10 mínútur.
- Blandið öllu saman í stóru skálina og hnoðið deigið upp í kúlu. Bætið við hveiti ef þarf. Það má hnoða deigið í hrærivél en ég hnoða það oftast í höndunum.
- Breiðið yfir skálina og leyfið deiginu að hefast á heitum stað í 2 klukkutíma eða þar til það hefur u.þ.b. tvöfaldast að stærð.
- Ef verið er að gera meira eina pizzu er deiginu núna skipt upp í eins marga hluta og pizzurnar eru og mótaðar kúlur.
- Leggið kúlurnar á bakka, breiðið yfir og leyfið að hefjast í u.þ.b. 20 mínútur.
- Fletjið út pizzadeig á góðu bretti (eða togið og snúið í loftinu ef þið getið). Áður en olía og álegg er sett ofan á er mikilvægt að vera viss um að deigið festist ekki við brettið. Hér getur þurft að bæta smá hveiti á botninn og snúa honum við á brettinu. Það þarf að vera hægt að hreyfa botninn auðveldlega á brettinu svo hægt sé að ná pizzunni af brettinu með pizzaspaða og skutla inn í eldofninn.
- Setjið pizzasósuna á botninn.
- Setjið rifna hvítlauksostinn næst.
- Skerið tómata í tvennt og raðið yfir ostinn.
- Skerið grillaða papriku í strimla og dreifið yfir botninn.
- Stráið rifna ostinum yfir.
- Bakið í eldofni sem náð hefur 400°C í u.þ.b. 1 mínútu. Bakið fyrst í 25 sek, takið pizzuna út, snúið í 180° og bakið í 15 sek, snúið svo í 90° og bakið í 15 sek, snúið svo að síðustu í 180° og bakið í 15 sek. Þannig tekur rúmlega mínútu að eldbaka pizzu í góðum eldofni. Sjá nánar í myndbandi.
- Skerið pizzuna í sneiðar og bætið við ferskri basilíku eða öðru fersku grænu grænmeti s.s. klettasalati.
Myndband
Góð ráð
- Það er mikilvægt að pizzan fari beint inn í eldofninn eftir að búið er að raða áleggi ofan á, því annars er hætta á að vökvinn úr sósunni síist inn í deigið og þá verður erfitt að ná pizzunni af brettinu.
- Það má að sjálfsögðu leika sér með grænmetið sem fer á pizzuna. Íslenskir kastaníusveppir eru t.d. frábær kostur.
- Það má bæta við ristuðum furuhnetum ofan á pizzuna eftir að hún er tekin út úr ofninum.
- Ef þú hefur ekki aðgang að eldofni, þá má að sjálfsögðu baka pizzuna í ofni. Stillið þá ofninn á mesta mögulega hita.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur


2 thoughts on “Grænmetispizza a la Góður kostur”