Fersk, fljótleg og sjúklega góð súpa
Fiskisúpa með kókosmjólk og límónu
Fjöldi skammta
3
Innihald
450 g langa eða annar stinnur og hvítur fiskur
Kókosolía eða lárperuolía til steikingar
1 laukur
1 eldpipar (rauður)
3 pressuð hvítlauksrif
1 msk ferskt rifið engifer
1 dós kókosmjólk
800 ml vatn
20 g grænmetiskraftur
1 msk fiskisósa (fish sauce)
1 msk tamari sósa
1 msk kókospálmasykur, púðursykur eða önnur sæta
2,5 límónur (ysta lagið af berkinum og safinn)
0,5 límóna (skorin í báta og borin fram með súpunni)
150 g paprika eða fennel
250 g smátómatar
Salt og pipar
Ferskur kóríander
Leiðbeiningar
- Saxið lauk.
- Hitið kókosolíu í potti við miðlungshita.
- Mýkið lauk í olíunni í nokkrar mínútur. Laukurinn á bara að mýkjast, ekki að brúnast.
- Saxið eldpipar smátt og bætið út í pottinn.
- Pressið hvítlauk og bætið út í pottinn.
- Rífið engifer og bætið út í pottinn.
- Bætið nú því grænmeti sem á að vera í súpunni (nema tómötum).
- Leyfið lauk, eldpipar, hvítlauk, engifer og grænmeti að mýkjast í olíunni í nokkrar mínútur.
- Bætið kókosmjólk, vatni og grænmetiskrafti út í pottinn og náið upp suðu.
- Bætið fiskisósu, tamarisósu og sykri út í pottinn.
- Rífið ysta lagið af límónuberkinum og kreistið safa úr límónum. Bætið út í pottinn.
- Skerið smátómata í tvennt, bætið út í pottinn.
- Leyfið súpunni að malla í u.þ.b. 10 mínútur.
- Skerið fiskinn í litla bita og bætið í pottinn.
- Eftir að fiskurinn er kominn í pottinn má súpan ekki malla lengur en svona 5 mínútur.
Góð ráð
- Berið fram með fersku kóríander og góðu brauði, t.d. súrdeigsbrauði og þeyttu smjöri.
- Súpan rífur aðeins í en er ekki óþægilega sterk. Ef þú vilt ekki hafa súpuna sterka þá má minnka magn eldpipars en mikilvægt að sleppa ekki alveg.
- Það er hægt að nota kjúkling í stað fisks en þá þarf er betra að elda kjúklinginn áður en hann er settur út í súpuna.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

