Gott með grófu, þéttu brauði, t.d. sólkjarnabrauði
Kalt fiskisalat
Fjöldi skammta
1
Hér er hægt að nýta afganga af köldum fiski.
Innihald
120 g kaldur soðinn fiskur, t.d. þorskur eða ýsa
2 stk litlar sýrðar agúrkur án sykurs
1 msk kapers
20 g létt majónes
100 g sýrður rjómi
1 tsk sítrónusafi
1 tsk dijon sinnep
salt og pipar
steinselja eða kóríander ofan á
Leiðbeiningar
- Skerið fisk og agúrku í litla bita
- Hrærið saman í sósu; létt majónesi, sýrðum rjóma, sítrónusafa og sinnepi
- Blandið saman sósu, fiski, agúrkum og kapers
- Bragðbætið með salt og pipar
- Látið bíða í kæli í 1/2 til 1 klukkustund
- Berið fram fram með brauði og skreytið með steinselju eða kóríander.
Góð ráð
- Bragðast vel með grófu þéttu brauði, s.s. maltbrauði eða rúgbrauði. Gott að hafa meira af sýrðum agúrkum sem meðlæti.
- Bökuð rauðrófa sem búið er að skera í teninga passar mjög vel með þessu salati og brauði.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

