Regluleg styrktarþjálfun hefur margvíslegan ávinning fyrir þig og þína heilsu.
Hér eru 8 góðar ástæður til að stunda styrktarþjálfun.
- Þú verður sterkari í leik og starfi.
- Þú eykur liðleika og sveigjanleika. Öfugt við það sem margir halda þá getur styrktarþjálfun aukið liðleika og gert þig sveigjanlegri.
- Þú eykur grunnbrennslu með auknum vöðvamassa. Þannig getur styrktarþjálfun hjálpað þér að viðhalda heilbrigðri líkamsþyngd.
- Þú styrkir beinin. Þyngdarberandi æfingar setja tímabundið álag á beinin þín og senda skilaboð til beinbyggjandi frumna um að gera beinin sterkari. Að hafa sterk bein dregur úr hættu á beinþynningu, beinbrotum og byltum, sérstaklega þegar þú eldist.
- Þú styrkir starfsemi hjarta- og æðakerfis. Rannsóknir hafa sýnt að regluleg styrktarþjálfun getur lækkað blóðþrýsting, lækkað slæma kólesterólið og bætt blóðrásina.
- Þú bætir blóðsykurstjórnun. Styrktarþjálfun getur dregið úr hættu á að fá sykursýki og getur hjálpað þeim sem eru með sjúkdóminn með blóðsykurstjórnun. Beinagrindavöðvar hjálpa til við að auka insúlínnæmi og þess vegna getur meiri vöðvamassi hjálpað til við að bæta blóðsykurstjórnun.
- Þú bætir andlega líðan. Hreyfing hefur almennt góð áhrif á andlega líðan og styrktarþjálfun er engin undantekning. Losun endorfíns á meðan æfingu stendur og eftir æfingu getur dregið úr streitu, kvíða og einkennum þunglyndis. Tilfinningin sem fylgir því að vera sterkari eykur líka sjálfstraust og jákvæðni.
- Þú minnkar hættu á meiðslum og ef þú lendir í meiðslum þá mun styrkurinn flýta fyrir bata.
Ef þú stundar ekki styrktarþjálfun í dag þá gæti verið sterkur leikur að byrja á morgun. Finndu styrktarþjálfun við hæfi sem hentar þér og helst þjálfun sem þú hefur líka gaman af. Íþróttakennarar og íþróttaþjálfarar geta gefið góðar leiðbeiningar um val á æfingum og tíðni æfinga.

