Hollur og góður kostur á bolludaginn
Vatnsdeigsbollur með hindberjakremi
Fjöldi skammta
2
Uppskrift úr einu eggi eru 2 skammtar.
Innihald
- Vatnsdeigsbollur
50 g kókosolía
1 dl vatn
50 g hveiti
1 meðalstórt egg
Örlítið salt
- Hindberjakrem
100 g sýrður rjómi 10% eða grísk jógúrt léttmál
100 g hindber
10 g fljótandi gæðahunang, ef vill
- Til skrauts
Smá sykurlaus flórsykur frá SUKRIN, ef vill
100 g hindber, bláber eða brómber
Leiðbeiningar
- Vatnsdeigsbollur
- Setjið vatn og kókosolíu í pott, hitið að suðu
- Takið pottinn af hitanum, stráið hveitinu út í pottinn og smá salti
- Hrærið með sleif þar til deigið losnar frá botninum, leyfið deiginu að kólna aðeins.
- Setjið egg í hrærivélaskál og bætið deiginu út í. Þeytið saman. Deigið á að vera svolítið seigt í sér.
- Notið 2 teskeiðar til að setja deigið á bökunarplötu, klædda bökunarpappír. Uppskrift úr einu eggi gefur 4 nokkuð stórar bollur.
- Bakið við 200° C í 20-30 mínútur, fer eftir ofni og stærðinni á bollunum
- Hindberjakrem
- Stappið hindber með gaffli og hrærið saman við sýrðan rjóma eða gríska jógúrt.
- Smakkið til með hunangi ef þarf.
- Að lokum
- Skerið bollurnar í tvennt
- Setjið hindberjakrem og fersk ber á milli
- Sigtið sykurlausan flórsykur yfir
Góð ráð
- Það má bæta við sykurlausri sultu, til að fá enn sætari bollur.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

