Gott ofan á hrökkbrauð eða sem meðlæti með kjöti eða fiski
Salatostamauk með sítrónu
Fjöldi skammtar
5
skammtarFerskt og gott salatostamauk með sítrónukeim
Innihald
250 g salatostur (Ostakubbur)
1 sítróna ysta lag af berkinum
1 sítróna safi
5 msk ólívuolía
0,5 tsk rauðar piparflögur, chili krydd eða svartur pipar
Leiðbeiningar
- Setjið allt nema kryddið í matvinnsluvél eða góðan blandara og blandið gróflega saman
- Setjið í fallega skál eða krukku
- Kryddið
- Njótið
Góð ráð
- Bragðast vel með góðu frækexi eða sem meðlæti með grænmeti, kjöti eða fiski.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

