Of góður…
Magnaður mangóís
Fjöldi skammta
2
Innihald
1 ferskt mangó (2-300 g)
100 ml möndlumjólk
Leiðbeiningar
- Afhýðið mangó og fjarlægið stein.
- Maukið saman mangó og möndlumjólk í blandara.
- Hellið blöndunni í form eða plastbox sem má fara í frysti. Þetta á að vera frekar þunnt lag svo auðvelt sé að skera það í bita þegar það er búið að frjósa.
- Frystið í a.m.k. 2 tíma (má vera lengur).
- Takið ísinn úr fyrsti og skerið í bita.
- Setjið bitana í blandara eða matvinnsluvél og maukið í smá stund.
- Setjið í fallegar skálar og njótið!
Góð ráð
- Gott að bera fram með granateplum eða bláberjum.
- Gott að hafa ristaðar kókosflögur með.
- Mangó er bæði gott og hollt. Það inniheldur andoxunarefni og styrkir ónæmiskerfi líkamans. Það inniheldur m.a. A-vítamín, B6-vítamín (fólínsýru) og C-vítamín. Mangó er talið hafa góð áhrif á augnheilsu, meltingu, húð og hár.
- Það má nota annars konar mjólk, t.d. kókosmjólk.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

