Lax með sítrónum og appelsínum

5.0 from 1 vote

Slær alltaf í gegn!

Lax með sítrónum og appelsínum

Lax með sítrónum og appelsínum

5.0 from 1 vote
Fjöldi skammta

4

Innihald

  • 1 laxaflak (800-1000g)

  • 1 sítróna (safi, börkur og sneiðar)

  • 1 límóna (safi, börkur og sneiðar)

  • 1 appelsína (safi, börkur og sneiðar)

  • Íslenskt ferskt blóðberg eða ferskt tímían

  • 10 g gott hunang

  • Salt og pipar

  • Létt sósa sem passar mjög vel með
  • 200 g sýrður rjómi

  • 2 msk blanda af safa úr sítrónu, límónu, appelsínu og berki (sjá leiðbeiningar)

  • Salt, pipar og ef til vill smá hunang

Leiðbeiningar

  • Leggið laxaflak á álpappír sem er nógu stór til að vefja utan um flakið.
  • Skerið sítrónu, límónu og appelsínu í tvennt, kreistið safa úr hálfri sítrónu, hálfri límónu og hálfri appelsínu. Blandið safanum saman.
  • Rífið ysta lagið af berkinum af hálfri sítrónu, hálfri límónu og hálfri appelsínu (þeim hluta sem safinn var kreistur úr). Blandið berkinum út í safann.
  • Hrærið saman og takið frá 2 matskeiðar og geymið í sósuna.
  • Hellið blöndunni yfir laxinn.
  • Saltið og piprið yfir laxinn.
  • Dreifið hunangi yfir laxinn.
  • Dreifið fersku blóðbergi eða tímían yfir laxinn.
  • Skerið hina helmingana af sítrónu, límónu og appelsínu í sneiðar og dreifið yfir laxinn.
  • Lokið álpappírnum og bíðið í 20-40 mínútur. Á meðan má útbúa meðlæti og kveikja á grillinu.
  • Grillið við meðalhita í u.þ.b. 10 mínútur.
  • Sósan
  • Blandið saman sýrðum rjóma og blöndunni af safa og berki.
  • Bragðbætið með salti, pipar og hunangi eftir smekk.

Góð ráð

  • Villti laxinn er auðvitað bestur en hann fæst ekki svo oft. Oft er hægt að fá laxaflök í Costco sem eru roðflett þannig að minni hætta er á að finna þráabragð af laxafitunni. Það má örugglega biðja um þetta í góðri fiskbúð líka.
  • Gott að bera fram með soðnum kartöflum og góðu salati.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur


Related Posts

Þín eigin möndlumjólk

Þín eigin möndlumjólk

Það verður ekki aftur snúið…

Morgunkorn Önnu Siggu

Morgunkorn Önnu Siggu

Trefjaríkt, próteinríkt og fullt af Omega-3 fitusýrum


2 thoughts on “Lax með sítrónum og appelsínum”

Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading