Matarmikið og bragðgott
Grískt kínóasalat
Fjöldi skammta
1
Innihald
75 g soðið kínóa
70 g kirsuberjatómatar
60 g agúrkur
20 g rauðlaukur
2 msk sítrónusafi
15 g ólívuolía
0,5 stk lárpera
50 g salatostur (ostakubbur)
50 g ferskt spínat eða spínatkál
10 g svartar olívur
Leiðbeiningar
- Mikilvægt er að skola kínóa vel áður en það er soðið, annars er hætta á að finna biturt bragð. Það getur líka verið gott að leggja það í bleyti í nokkra tíma fyrir suðu. Þannig verður það enn auðmeltanlegra. Til að fá 75 g af soðnu kínóa þarf um 25 af ósoðnu kínóa. Setjið um 2 hluta af vatni á móti einum hluta af kínóa.
- Hitið vatnið að suðu og setjið þá kínóa kúlurnar út í vatnið og sjóðið í 10-15 mínútur. Sjóðið þar til allt vatn er búið eða hellið vatninu af þegar kínóa er soðið.
- Kínóa sett í skál og látið kólna
- Skerið, tómata, agúrku, rauðlauk, lárperu og mest allt spínatið, blandið varlega saman við kælt kínóa.
- Hrærið saman sítrónusafa og olíu, hellið yfir.
- Skerið salatostinn í teninga og setjið yfir
- Bætið svörtum ólívum og afganginum af spínatinu yfir að lokum.
Góð ráð
- Kínóa er holl og góð fæða. Er próteinríkt og inniheldur næstum allar mikilvægu amínósýrurnar. Kínóa er mjög trefjaríkt og inniheldur Omega-3 fitusýrur sem eru nauðsynlegar og góðar fyrir okkur. Er auk þess járnríkt.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

