Veislumatur
Fiskur í ofni með eplum, grænmeti og alls konar ostum
Skammtar
6
Innihald
1000 g góður fiskur, t.d. þorskur eða ýsa
1 græn paprika
250 g gulrætur
2 epli
200 g rjómaostur
250 ml rjómi
150 g paprikuostur
150 g brie ostur
200 g rifinn ostur
3 hvítlauksrif
Olía til steikingar
Salt og pipar
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 180 gráður.
- Skerið gulrætur í sneiðar og papriku í bita.
- Hitið olíu á pönnu og mýkið grænmetið í olíunni á vægum hita án þess að brúna það.
- Pressið hvítlauk eða saxið smátt og bætið út á pönnuna.
- Skerið eplin í bita og bætið út á pönnuna.
- Bætið rjómaosti og rjóma út á pönnuna.
- Skerið kryddost í litla bita eða rífið og bætið á pönnuna.
- Skerið fisk í munnbita, saltið og piprið og raðið í eldfast mót.
- Hellið grænmetis- epla- og ostablöndunni af pönnunni ofan á fiskinn.
- Skerið brie ost í bita og raðið ofan á blönduna.
- Að lokum er rifinn ostur settur yfir allt.
- Bakið í ofni í 15-20 mínútur.
Góð ráð
- Berið fram með hýðishrísgrjónum eða perlubyggi og góðu salati.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

