Ferskt og gott
Grískt salat
Fjöldi skammta
1
Innihald
75 g tómatar, helst stórir
75 g agúrka
50 g græn paprika
25 g rauðlaukur
50 g fetaostur án olíu eða ostakubbur
10 g svartar ólívur
- Salatsósa
10 ml ólívuolía
0,5 sítróna (safinn og ysta lagið af berkinum)
1 tsk rauðvínsedik
Salt og pipar
0,5 tsk óreganó
Leiðbeiningar
- Skerið rauðlauk í þunnar sneiðar og setjið í kalt vatn meðan salatið er útbúið.
- Skerið tómata í bita, setjið í skál.
- Fjarlægið hýði af agúrku, skerið í bita og setjið í skál með tómötum.
- Skerið papriku í þunnar sneiðar og setjið með tómötum og gúrku í skál.
- Hellið salatsósunni yfir grænmetið og blandið vel saman.
- Setjið fetaost, rauðlauk og ólívur ofan á grænmetið.
- Salatsósa
- Setjið öll innihaldsefni í litla krukku og hristið þar til allt hefur blandast vel saman.
Góð ráð
- Það passar vel að hafa kapers með grísku salati.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

