Mexíkósk kjúklingasúpa

5.0 from 1 vote

Stútfull af grænmeti og hollustu

Mexíkósk kjúklingasúpa

Mexíkósk kjúklingasúpa

5.0 from 1 vote
Fjöldi skammta

6

Innihald

  • 600 g eldað kjúklingakjöt

  • 150 g laukur

  • 250 g plómutómatar eða annars konar tómatar

  • 100 g blaðlaukur

  • 6 hvítlauksrif, pressuð

  • 400 g paprika, rauð

  • 1 eldpipar, rauður (chili)

  • 2 tsk paprikuduft

  • 2 tsk eldpiparduft (chiliduft)

  • 120 g tómatpúrra

  • 1200 ml vatn

  • 30 g kjúklingateningur

  • 400 g tómatar í dós

  • 250 g rjómaostur

  • Olía til steikingar

  • Meðlæti
  • 300 g sýrður rjómi

  • 75 g rifinn ostur

  • Ferskur kóríander

  • Maís flögur

Leiðbeiningar

  • Skerið lauk, papriku, blaðlauk, plómutómata og eldpipar nokkuð smátt og mýkið í olíu í potti.
  • Bætið hvítlauk, paprikudufti, eldpipardufti og tómatmauki saman við og mýkið áfram í smá stund.
  • Bætið vatni og kjúklingakrafti saman við og látið malla í 15- 20 mín við vægan hita.
  • Bætið tómötum úr dós út í pottinn ásamt rjómaostinum og látið sjóða í 3-5 mín við vægan hita.
  • Ef þú átt töfrasprota er gott að mauka súpuna að hluta. Þannig verður hún þykkari og fær skemmtilega áferð.
  • Bætið elduðu kjúklingakjöti út í súpuna og hitið áfram þar til kjötið er orðið heitt.
  • Smakkið til með salti, pipar og ef til vill meira af eldpipardufti.
  • Berið fram með sýrðum rjóma, rifnum osti, fersku kóríander og maís flögum.

Góð ráð

  • Það má nota kjúklingabaunir í staðinn fyrir kjúkling.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur


Related Posts

Þín eigin möndlumjólk

Þín eigin möndlumjólk

Það verður ekki aftur snúið…

Morgunkorn Önnu Siggu

Morgunkorn Önnu Siggu

Trefjaríkt, próteinríkt og fullt af Omega-3 fitusýrum


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading