Eldbökuð pizza með eplum og sítrónuolíu

0.0 from 0 votes

Geggjuð hvít pizza

Eldbökuð pizza með eplum og sítrónuolíu

Eldbökuð pizza með eplum og sítrónuolíu

0.0 from 0 votes
Einn skammtur = 12 tommu pizza

1

Pizza botn

  • 50 ml volgt vatn

  • 1 msk ólívuolía

  • 2 g þurrger

  • 3 g salt

  • 90 g pizzahveiti

  • Meira hveiti ef þarf

  • Ofan á
  • 0,5 epli, skorið í þunnar sneiðar

  • 1 msk sítrónuolía

  • 50 g rifinn pizza ostur

  • 10 g rifinn gráðostur

  • 30 g mozzarella ostur

  • 30 g döðlur, smátt skornar

  • 0,5 börkur af sítrónu (bara ysta lagið)

  • Ristaðar furuhetur

Leiðbeiningar

  • Setjið helminginn af volga vatninu í stóra skál ásamt olíu og salti.
  • Setjið hinn helminginn af volga vatninu í glas og blandið þurrgeri út í. Látið standa þar til gerið fer að freyða aðeins. Þetta getur tekið u.þ.b. 10 mínútur.
  • Blandið öllu saman í stóru skálina og hnoðið deigið upp í kúlu. Bætið við hveiti ef þarf. Það má hnoða deigið í hrærivél en ég hnoða það oftast í höndunum.
  • Breiðið yfir skálina og leyfið deiginu að hefast á heitum stað í 2 klukkutíma eða þar til það hefur u.þ.b. tvöfaldast að stærð.
  • Ef verið er að gera meira eina pizzu er deiginu núna skipt upp í eins marga hluta og pizzurnar eru og mótaðar kúlur.
  • Leggið kúlurnar á bakka, breiðið yfir og leyfið að hefjast í u.þ.b. 20 mínútur.
  • Fletjið út pizzadeig á góðu bretti (eða togið og snúið í loftinu ef þið getið). Áður en olía og álegg er sett ofan á er mikilvægt að vera viss um að deigið festist ekki við brettið. Hér getur þurft að bæta smá hveiti á botninn og snúa honum við á brettinu. Það þarf að vera hægt að hreyfa botninn auðveldlega á brettinu svo hægt sé að ná pizzunni af brettinu með pizzaspaða og skutla inn í eldofninn.
  • Setjið sítrónuolíu beint á botninn.
  • Setjið helming rifna ostsins næst.
  • Raðið þunnum eplasneiðum, gráðosti, mozzarellaosti og döðlum ofan á.
  • Rífið sítrónubörk (ysta lagið) yfir.
  • Stráið restinni af rifna ostinum yfir.
  • Bakið í eldofni sem náð hefur 400°C í u.þ.b. 1 mínútu. Bakið fyrst í 25 sek, takið pizzuna út, snúið í 180° og bakið í 15 sek, snúið svo í 90° og bakið í 15 sek, snúið svo að síðustu í 180° og bakið í 15 sek. Þannig tekur rúmlega mínútu að eldbaka pizzu í góðum eldofni. Sjá nánar í myndbandi.
  • Skerið og skutlið ristuðum furuhnetum yfir.

Myndband

Góð ráð

  • Það er mikilvægt að pizzan fari beint inn í eldofninn eftir að búið er að raða áleggi ofan á, því annars er hætta á að olían síist inn í deigið og þá verður erfitt að ná pizzunni af brettinu.
  • Það er mjög gott að nota perur í staðinn fyrir epli.
  • Það má líka nota annars konar ost, s.s. hvítmygluost.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur


Related Posts

Þín eigin möndlumjólk

Þín eigin möndlumjólk

Það verður ekki aftur snúið…

Morgunkorn Önnu Siggu

Morgunkorn Önnu Siggu

Trefjaríkt, próteinríkt og fullt af Omega-3 fitusýrum


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading