Blómkálssúpa með blóðbergi

0.0 from 0 votes

Brakandi fersk og góð

Blómkálssúpa með blóðbergi

Blómkálssúpa með blóðbergi

0.0 from 0 votes
Fjöldi skammta

1

Innihald

  • 250 g blómkál

  • 50 g blaðlaukur

  • 400 ml vatn

  • 10 g kjúklingakraftur

  • 15 g ferskt blóðberg eða tímían

  • 50 g sýrður rjómi 10%

  • Salt og pipar

Leiðbeiningar

  • Skerið blómkál og blaðlauk í bita og setjið pott ásamt vatni.
  • Bætið kjúklingakrafti og blóðbergi út í pottinn.
  • Sjóðið í nokkrar mínútur eða þar til blómkál og blaðlaukur eru farin að mýkjast.
  • Slökkvið undir pottinum og hrærið sýrða rjómanum saman við.
  • Smakkið til með salti og pipar.

Góð ráð

  • Gott að bera fram með grófu ristuðu brauði og osti.
  • Það má nota þurrkað tímían ef ekki er til ferskt tímían eða ferskt blóðberg.
  • Til að þykkja súpuna má mauka hluta súpunnar í matvinnsluvél eða öflugum blandara. Takið þá hluta af blómkálinu frá og setjið í skál áður en sýrði rjóminn er settur út í. Blandið svo öllu saman og hellið yfir þann hluta blómkálsins sem ekki var maukað.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur


Related Posts

Þín eigin möndlumjólk

Þín eigin möndlumjólk

Það verður ekki aftur snúið…

Morgunkorn Önnu Siggu

Morgunkorn Önnu Siggu

Trefjaríkt, próteinríkt og fullt af Omega-3 fitusýrum


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading