Viltu bæta heilsuna?

Það er margt sem þú getur gert til að bæta þína heilsu. Þetta er ekki spurning um allt eða ekkert. Þú getur tekið eitt skref í átt að betri heilsu strax í dag. Svo getur þú kannski tekið annað skref á morgun, eða hinn.

MataræðiMataræðið skiptir miklu máli þegar kemur að því að bæta heilsuna. Ef þú átt erfitt með að bæta mataræðið er gott að byrja á því að leggja áherslu á að velja heil, lítið unnin og næringarrík matvæli, s.s. ferskt grænmeti, ávexti, heilkorna vörur, baunir og hreinar mjólkurvörur. Borðaðu grænmeti og ávexti í öllum regnbogans litum, helst á hverjum degi. 
VatnHver einasta fruma líkamans þarfnast nægjanlegrar vökvunar til að virka sem best. Vertu viss um að drekka nóg af vökva. Vatnið er best en það er líka notalegt að drekka gott jurtate. Þú getur bragðbætt vatnið með límónu, sítrónu eða öðrum ávöxtum. Það er góð byrjun á deginum að drekka eitt eða fleiri glös af hreinu vatni.
HvíldAð hvíla sig er jafn mikilvægt og að hreyfa sig reglulega. Að taka 15 mínútna hlé yfir daginn þar sem þú hvílir þig bæði líkamlega og andlega getur hjálpað þér að endurnýja orkuna og einbeitinguna. 
SvefnSvefn hefur mikil áhrif á líðan og starfsemi líkamans. Veistu að það er gott að fara alltaf að sofa á sama tíma og vakna á sama tíma? Hvernig er þín svefnrútína? Ertu að fá nægan svefn?
HreyfingEitt af því besta sem þú getur gert til að bæta heilsuna að hreyfa þig. Finndu leiðir til að koma inn hreyfingu sem þér finnst skemmtileg og veitir þér vellíðan. Þegar þú ert búin finna þína hreyfingu þá ætti að vera auðvelt að hreyfa sig á hverjum degi.
TengslSterk og heilbrigð tengsl við sjálfan þig og aðra eru nauðsynleg fyrir vellíðan þína. Hugaðu daglega að eigin líðan og líðan fólksins í kringum þig. Ræktaðu tengslin við fólkið þitt.
Náttúra og útiveraÚtivera og tengsl við náttúruna auka vellíðan og draga úr streitu. Gefðu þér tíma til að anda að þér fersku lofti, njóta birtunnar og hlusta á fuglasönginn. Hreyfing úti í náttúrunni er einstaklega gefandi og góð fyrir heilsuna. 

 


Related Posts

Þín eigin möndlumjólk

Þín eigin möndlumjólk

Það verður ekki aftur snúið…

Hvítkáls- og eplasalat

Hvítkáls- og eplasalat

Passar mjög vel með fiski


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading