Sveppa rísottó

0.0 from 0 votes

Dásamlega gott

Sveppa rísottó

Sveppa rísottó

0.0 from 0 votes
Fjöldi skammta

4

Innihald

  • 30 g kjúklingakraftur

  • 1000 ml vatn

  • 50 g smjör til steikingar

  • 200 g sveppir, t.d. íslenskir kastaníusveppir eða villtir sveppir

  • 100 g laukur, t.d. skalotlaukur

  • 300 g rísottó hrísgrjón

  • 200 ml hvítvín (má sleppa og nota blöndu af hvítvínsediki og vatni)

  • 90 g góður parmesan ostur

  • 3 hvítlauksrif

  • 2 msk fersk tímíanlauf

  • 300 g fulleldaður kjúklingur í bitum

  • Salt og pipar

Leiðbeiningar

  • Byrjið á að setja kjúklingakraft og vatn í pott. Hitið að suðu og leysið kjúklingakraftinn vel upp í vatninu. Kjúklingakrafturinn verður notaður á eftir.
  • Skerið sveppi og lauk í sneiðar.
  • Hitið pönnu og bræðið smjörið.
  • Steikið sveppi og lauk í nokkrar mínútur í smjörinu.
  • Bætið hrísgrjónum á pönnuna og blandið saman við smjör, sveppi og lauk.
  • Bætið hvítvíni út á pönnuna og látið suðuna koma upp. Látið malla þar til vökvinn hefur minnkað um u.þ.b. helming.
  • Bætið pressuðum hvítlauk á pönnuna.
  • Bætið u.þ.b. hálfum bolla af kjúklingakrafti á pönnuna og hrærið vel svo hrísgrjónin festist ekki við botninn.
  • Haldið áfram að bæta um hálfum bolla af kjúklingakrafti í einu á pönnuna og hrærið nánast stöðugt í.
  • Endurtakið þetta þar til kjúklingakrafturinn er búinn. Þetta tekur um 20-30 mínútur og smám saman mýkjast grjónin.
  • Þegar rísottóið er alveg að verða tilbúið má bæta við fullelduðum kjúklingabitum og leyfa þeim að hitna með rísottóinu.
  • Bætið að lokum rifnum parmesan osti út á pönnuna ásamt fersku tímían og blandið vel saman.

Góð ráð

  • Gott að bera fram með góðu grænusalati, t.d. salati með granateplum og vínberjum.
  • Ef ekki er notað hvítvín er hægt að blanda saman vatni og hvítvínsediki í hlutföllunum 20% edik og 80% vatn.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur


Related Posts

Þín eigin möndlumjólk

Þín eigin möndlumjólk

Það verður ekki aftur snúið…

Morgunkorn Önnu Siggu

Morgunkorn Önnu Siggu

Trefjaríkt, próteinríkt og fullt af Omega-3 fitusýrum


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading