Brakandi ferskt og stútfullt af góðri næringu
Salat með kjúklingabaunum og grænkáli
Fjöldi skammta
1
Innihald
100 g ferskt grænkál
50 g agúrka
50 g radísur
150 g soðnar kjúklingabaunir (geta verið úr krukku eða dós)
1 skammtur salatsósa
Ferskt kóríander, ef vill
Leiðbeiningar
- Skerið grænkál í bita og blandið saman við salatsósuna. Gott að leyfa þessu að bíða í svolítinn tíma, jafnvel nokkra klukkutíma.
- Setjið grænkálið í fallega skál.
- Skerið agúrku í bita og bætið saman við grænkálið.
- Skerið radísur í sneiðar og blandið saman við.
- Bætið kjúklingabaunum í skálina og blandið vel saman við grænmetið.
- Skreytið með fersku kóríander.
Góð ráð
- Gott að bera fram með ristuðu góðu súrdeigsbrauði og smjöri.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

