Einfaldur, góður, sykurlaus og fitusnauður
Laufléttur grjónagrautur
Fjöldi skammta
1
Innihald
35 g hvít grautarhrísgrjón eða stutt hýðishrísgrjón
250 ml fjörmjólk eða léttmjólk
0,25 tsk salt
10 g rúsínur
Leiðbeiningar
- Setjið allt saman í pott.
- Hafið lítinn hita á, þannig að suðan komi upp á u.þ.b. 1 klst. Ég nota spanhellu og stilli hitann á 3 af 9 mögulegum.
- Hrærið af og til í pottinum á meðan suðan er að koma upp.
- Þegar suðan er komin upp má annað hvort lækka hitann niður í minnsta mögulega hita (ég lækka niður í 1 af 9 mögulegum) eða taka pottinn af hellunni og geyma hann á heitum stað í 2-3 tíma. Ég hef sett pottinn í heitt vatnsbað ofan í vask eða inn í heitan ofn (50-80°C).
Góð ráð og fróðleikur
- Það er gott að bragðbæta með kanil (Ceylon) eða vanilludropum.
- Í staðinn fyrir rúsínur mætti nota smátt skorið epli.
- Grautargrjón eru mjög góð en hýðishrísgrjón innihalda meiri trefjar og meiri næringu og eru því hollari. Þau þurfa aðeins lengri tíma.
Góður kostur er á Instagram
Góður kostur er hér @godur_kostur og notar myllumerkið #godurkostur
Góður kostur er með Facebook síðu
Þú finnur síðuna hér Góður kostur


1 thought on “Laufléttur grjónagrautur”