Meiriháttar góðar!
Maríneraðar kjúklingabringur á grillið
Fjöldi skammta
5
Innihald
850 g kjúklingabringur
1 rauður chili-pipar, smátt saxaður
Ferskur kóríander
- MARINERING
50 g sítrónugras (u.þ.b. 3 stilkar)
25 g ferskt engifer
1 sítróna (safi og ysta lagið af berkinum)
5 msk tamarísósa
10 g sykurlaus aprikósusulta
5 msk sesamolía
Leiðbeiningar
- Skerið hverja kjúklingabringu í 3 hluta langsum
- Blandið saman öllu sem á að vera í maríneringunni og maukið saman í matvinnsluvél eða öflugum blandara. Ef þið eigið ekki blandara, þá er hægt að rífa engifer og saxa sítrónugras mjög smátt og blanda svo öllu saman.
- Leggið kjúklinginn í maríneringuna og geymið í ísskáp.
- Kjúklingurinn þarf helst að marinerast í 4 klukkustundir en verður meyrari ef hann fær að marínerast lengur. Má marínerast í sólarhring.
- Grillið á miðlungshita í 4-5 mínútur á hvorri hlið.

- Dreifið smátt söxuðum chili-pipar og fersku kóríender yfir kjúklinginn

Góð ráð
- Gott að bera fram með soðnu perlubyggi og fersku salati með smá salatosti, furuhnetum og sítrónuolíu.
- Gott að bera fram límónubáta og kreista yfir kjúklinginn.
- Mangósósa passar mjög vel með þessum rétti.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

