Rabarbarabaka með haframylsnu

0.0 from 0 votes

Sumarleg rabarbarabaka sem bráðnar í munninum

Rabarbarabaka með haframylsnu

Rabarbarabaka með haframylsnu

0.0 from 0 votes


Sumarleg rabarbarabaka sem bráðnar í munninum. Súrsætt rabarabarabragð, mildur keimur af kókos og stökkar pekanhnetur gera þessa böku ómótstæðilega. Fljótleg og fullkomin með vanilluís eða þeyttum rjóma.

Innihald

  • 400 g rabarbari

  • 50 g kókospálmasykur

  • 1 sítróna (safi og börkur)

  • 150 g bráðið smjör

  • 100 g möndlumjöl

  • 100 g hrásykur

  • 100 g haframjöl

  • 0,5 tsk matarsódi

  • 75 g kókosmjöl

  • Smá salt

  • Ofan á
  • 100 g pekanhnetur

Leiðbeiningar

  • Skerið rabarbarann í bita, setjið í eldfast mót og blandið saman við kókospálmasykur.
  • Rífið ysta lagið af berkinum á sítrónunni og bætið saman við.
  • Kreistið safann úr sítrónunni og blandið saman við rabarabara, sykur og sítrónubörk. Leyfið þessu að bíða meðan mylsnan er gerð.
  • Bræðið smjörið og látið það kólna örlítið.
  • Blandið saman möndlumjöli, hrásykri, haframjöli, kókosmjöli, matarsóda og smá salti í skál.
  • Bætið bráðnu smjörinu saman við og blandið vel saman.
  • Hitið ofn í 180°C (blástur).
  • Dreifið haframylsnunni yfir rabarbarann.
  • Bakið í u.þ.b. 10 mínútur og dreifið þá pekanhnetum yfir.
  • Bakið í 10–15 mínútur í viðbót eða þar til yfirborðið er gullinbrúnt.
  • Berið bökuna fram volga með vanilluís eða þeyttum rjóma

Góð ráð og fróðleikur

  • Það má nota hveiti í stað möndlumjöls og hvítan strásykur í stað hrásykurs og kókospálmasykurs.
  • Það má bæta við einu niðurskornu epli eða um 100 g af hindberjum saman við rabarbarablönduna.
  • Það má nota kókosflögur í stað pekanhneta eða hafa bara bæði.
Instagram

Góður kostur er á Instagram

Góður kostur er hér @godur_kostur og notar myllumerkið #godurkostur

Facebook

Góður kostur er með Facebook síðu

Þú finnur síðuna hér Góður kostur


Related Posts

Þín eigin möndlumjólk

Þín eigin möndlumjólk

Það verður ekki aftur snúið…

Morgunkorn Önnu Siggu

Morgunkorn Önnu Siggu

Trefjaríkt, próteinríkt og fullt af Omega-3 fitusýrum


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading