Súkkulaðiskál

0.0 from 0 votes

Geggjaður spari morgunverður eða hollur eftirréttur

Súkkulaðiskál

Súkkulaðiskál

0.0 from 0 votes
Fjöldi skála

4

Innihald

  • 35 g chia fræ

  • 100 ml vatn

  • 100 g haframjöl

  • 1 dós kókosmjólk

  • 2 msk kakó, helst lífrænt hrátt

  • 1 tsk vanilla

  • Smá salt

  • 200 ml þín eigin möndlumjólk sætt með 50 g af döðlum fyrir nverja 200 ml þannig að hún sé dísæt*

Leiðbeiningar

  • Byrjið á að setja chia fræ og vatn í hrærivélaskál og látið bíða í nokkrar mínútur.
  • Bætið öllum öðrum innihaldsefnum nema möndlumjólkinni í hrærivélaskálina og þeytið vel saman í hrærivél í 5 mínútur.
  • Bætið möndlumjólkinni saman við og þeytið áfram í u.þ.b. 15 mínútur.
  • Hellið í skálar og geymið í ísskáp í a.m.k. 4 klukkutíma.
  • Skreytið skálarnar t.d með ristuðum kókosflögum, múslí, berjum eða öðrum ávöxtum.

Góð ráð

  • *Ef þú hefur ekki tök á að gera þína eigin möndlumjólk eða ef hún er ekki mjög sæt er gott að bæta við einhverri sætu, t.d. 45 g af góðu hunangi eða hlynsýrópi.
  • Skálarnar geymast vel í ísskáp í nokkra daga. Gaman að gera svona skálar á föstudagskvöldi til að eiga góðan og orkuríkan morgunmat yfir helgina.
  • Ef skálarnar eru notaðar sem eftirréttur er gott að hafa þeyttan rjóma með.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur


Related Posts

Þín eigin möndlumjólk

Þín eigin möndlumjólk

Það verður ekki aftur snúið…

Morgunkorn Önnu Siggu

Morgunkorn Önnu Siggu

Trefjaríkt, próteinríkt og fullt af Omega-3 fitusýrum


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading