Fallegar og elegant eins og leikkonan Sarah Bernhardt
Sörur
100
kökurÞessi uppskrift er úr uppskriftabók mömmu. Sörurnar hennar voru alltaf þær bestu að mínu mati – líklega vegna þess að kaffið gefur þeim svo gott og djúpt bragð. Hún gerði þær líka frekar nettar, sem mér finnst mjög smart.
Innihald
- Botn
400 g fínmalaðar möndlur
300 g flórsykur
5 eggjahvítur
- Smjörkrem
130 g sykur
1,5 dl vatn
5 eggjarauður
300 g smjör (mjúkt)
2 msk kakó
2,5 tsk kaffiduft (skyndikaffi, t.d. Nescafé)
- Hjúpur
250 g hjúpsúkkulaði
Leiðbeiningar
- Botn
- Hitið ofninn í 180°C.
- Malið möndlur í matvinnsluvél eða öflugum blandara þar til þær eru fínmalaðar (varist þó að mala of lengi).
- Blandið flórsykrinum saman við möndlurnar.
- Stífþeytið eggjahvítur og blandið saman við möndlusykurblönduna.
- Setjið deigið í sprautupoka eða notið teskeiðar og setjið litlar kökur á bökunarpappír.
- Bakið við 180°C í 12-15 mínútur eða þar til botnarnir eru ljósir og stökkir á köntunum.
- Látið kökurnar kólna alveg.
- Smjörkrem
- Setjið sykur og vatn í pott og hitið þar til sykurinn hefur leyst upp og blandan fer að sjóða. Látið malla í 2–3 mínútur þannig að það myndist þunnt síróp.
- Þeytið eggjarauðurnar vel og hellið heitu sírópinu varlega í mjórri bunu út í á meðan er þeytarinn látinn ganga.
- Haldið áfram að þeyta rólega þar til blandan kólnar aðeins.
- Bætið mjúku smjörinu saman við, smá í einu, og þeytið þar til kremið verður slétt og létt.
- Myljið kaffiduft með mortéli eða skeið og bætið út í.
- Bætið kakói út í og blandið vel saman við.
- Látið kremið kólna vel áður en það er sett á kökurnar.
- Samsetning og súkkulaðihjúpur
- Sprautaðu eða smyrðu góðri doppu af smjörkremi á sléttu hlið hverrar köku.
- Gott er að setja kökurnar í frysti (eða út fyrir ef það er frost) í 15–20 mínútur áður en þær eru hjúpaðar, því þá er auðveldara að dýfa þeim.
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og kælið niður þar til það er volgt eða u.þ.b. 40°C.
- Dýfið toppnum á hverri köku í súkkulaðið og látið það þekja smjörkremið.
Góð ráð
- Eins og svo margt gott koma þessar smákökur frá Danmörku. Kondítori í Kaupmannahöfn bjó til þessar fínu smákökur í tilefni af heimsókn Sarah Bernhardt, leikkonu sem var ein skærasta stjarna Evrópu í kringum aldamótin 1900. Kondítorar nefndu gjarnan kökur og sælgæti eftir þekktum persónum og þótti við hæfi að svona elegant og fínlegar kökur bæru nafn manneskju sem á þessum tíma var tákn fegurðar og fágunar.
Kökurnar breiddust síðan um Norðurlönd og komu til Íslands, þar sem þær urðu vinsælar og fengu nafnið Sörur.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

