Með sinnepi og ferskum kryddjurtum
Sítrónukjúklingur með sinnepi og ferskum kryddjurtum
Fjöldi skammta u.þ.b.
4
Einn sá allra besti!
Innihald
1 heill kjúklingur
5 msk dijon sinnep
5 greinar ferskt tímían
3 greinar ferskt rósmarín
1 sítróna
5 hvítlauksrif
Salt og pipar
Leiðbeiningar
- Hitið ofninn í 200 °C
- Þerrið kjúklinginn og kryddið vel með salti og pipar
- Setjið kjúklinginn í eldfast fat eða leirpott
- Stingið kryddjurtum inn undir skinnið á kjúklingnum og setjið líka innan í hann
- Fjarlægið hýðið af hvítlauknum og skerið í þunnar sneiðar. Setjið hvítlaukinn innan í kjúklinginn og inn undir skinnið.
- Skerið sítrónuna í tvennt og setjið inn í kjúklinginn
- Makið dijon sinnepi yfir allan kjúklinginn
- Eldið í 200°C heitum ofni í 60-75 mínútur eða þar til kjúklingurinn hefur náð kjarnhita 74-75 °C.
Góð ráð
- Gott að bera fram með soðnum brúnum hrísgrjónum og góðu salati með sítrónuolíu.
- Mæli með að nota kjöthitamæli til að forðast ofeldun.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

