Jólagrautur frá Danmörku
Riz à l’amande
Fjöldi skammta
4
Innihald
50 ml vatn
75 g grautarhrísgrjón (ósoðin)
600 ml nýmjólk
8 möndlur án hýðis
1 msk sykur
1 tsk vanillusykur
250 ml rjómi
5 blöð matarlím
Leiðbeiningar
- Setjið hrísgrjón og vatn í pott. Látið suðuna koma upp.
- Þegar suðan er komin upp er mjólkinni bætt smám saman út í. Nú þarf að hræra nokkuð reglulega í pottinum svo ekki ekki brenni við. Hafið stillt á frekar lágan hita en samt það háan að það nái að malla.
- Það má bæta sykri og vanillusykri í pottinn þegar mjólkin er komin í. Það þarf að reikna með að þurfa að standa við pottinn í u.þ.b. eina klukkustund og hræra og hræra. Gott að hlusta á ljúfa jólatónlist á meðan.
- Leggið matarlím í bleyti í kalt vatn. Það þarf að mýkjast vel i kalda vatninu.
- Þegar hrísgrjónin eru orðin vel mjúk þá er matarlímið tekið upp úr kalda vatninu og vatnið kreist úr. Síðan er matarlímið sett út í heitan grautinn og blandað vel saman við. Slökkt undir grautnum.
- Saxið möndlurnar smátt (allar nema eina) og bætið út í grautinn.
- Stífþeytið rjóma og blandið saman við grautinn þegar hann hefur náð stofuhita.
- Setjið möndluna út í grautinn.
- Skiptið grautnum í skálar fyrir alla.
- Geymið í ísskáp þar til þið njótið.
Góð ráð
- Riz à l’amande er franskt nafn á dönskum hrísgrjónabúðingi með möndlum. Grauturinn er því danskur en möndlugjöfin er talin tengjast frönskum sið sem felst í því að í samkvæmi daginn fyrir þrettánda borðuðu menn köku sem í var falin baun. Sá sem hana fann réði öllu í samkvæminu það sem eftir lifði kvölds. Heimild: Vísindavefurinn.
- Þessa uppskrift fékk mamma þegar hún var í dönskum lýðháskóla snemma á 7. áratugnum. Matarlímið gerir áferðina á þessum graut mjög skemmtilega.
- Það passar mjög vel að bera fram danska kirsuberjasósu frá “Den Gamle Fabrik” með þessum danska jólagraut.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

