Riz à l’amande 

5.0 from 1 vote

Jólagrautur frá Danmörku

Riz à l'amande

Riz à l’amande

5.0 from 1 vote
Fjöldi skammta

4

Innihald

  • 50 ml vatn

  • 75 g grautarhrísgrjón (ósoðin)

  • 600 ml nýmjólk

  • 8 möndlur án hýðis

  • 1 msk sykur

  • 1 tsk vanillusykur

  • 250 ml rjómi

  • 5 blöð matarlím

Leiðbeiningar

  • Setjið hrísgrjón og vatn í pott. Látið suðuna koma upp.
  • Þegar suðan er komin upp er mjólkinni bætt smám saman út í. Nú þarf að hræra nokkuð reglulega í pottinum svo ekki ekki brenni við. Hafið stillt á frekar lágan hita en samt það háan að það nái að malla.
  • Það má bæta sykri og vanillusykri í pottinn þegar mjólkin er komin í. Það þarf að reikna með að þurfa að standa við pottinn í u.þ.b. eina klukkustund og hræra og hræra. Gott að hlusta á ljúfa jólatónlist á meðan.
  • Leggið matarlím í bleyti í kalt vatn. Það þarf að mýkjast vel i kalda vatninu.
  • Þegar hrísgrjónin eru orðin vel mjúk þá er matarlímið tekið upp úr kalda vatninu og vatnið kreist úr. Síðan er matarlímið sett út í heitan grautinn og blandað vel saman við. Slökkt undir grautnum.
  • Saxið möndlurnar smátt (allar nema eina) og bætið út í grautinn.
  • Stífþeytið rjóma og blandið saman við grautinn þegar hann hefur náð stofuhita.
  • Setjið möndluna út í grautinn.
  • Skiptið grautnum í skálar fyrir alla.
  • Geymið í ísskáp þar til þið njótið.

Góð ráð

  • Riz à l’amande er franskt nafn á dönskum hrísgrjónabúðingi með möndlum. Grauturinn er því danskur en möndlugjöfin er talin tengjast frönskum sið sem felst í því að í samkvæmi daginn fyrir þrettánda borðuðu menn köku sem í var falin baun. Sá sem hana fann réði öllu í samkvæminu það sem eftir lifði kvölds. Heimild: Vísindavefurinn.
  • Þessa uppskrift fékk mamma þegar hún var í dönskum lýðháskóla snemma á 7. áratugnum. Matarlímið gerir áferðina á þessum graut mjög skemmtilega.
  • Það passar mjög vel að bera fram danska kirsuberjasósu frá “Den Gamle Fabrik” með þessum danska jólagraut.
Instagram

Varstu að prófa þessa uppskrift?

Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur

Facebook

Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?

Þú finnur mig hér Góður kostur


Related Posts

Þín eigin möndlumjólk

Þín eigin möndlumjólk

Það verður ekki aftur snúið…

Morgunkorn Önnu Siggu

Morgunkorn Önnu Siggu

Trefjaríkt, próteinríkt og fullt af Omega-3 fitusýrum


Leave a Reply


Discover more from GÓÐUR KOSTUR

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading