Fallegt og gott
Regnbogasalat
Fjöldi skammta
1
Innihald
100 g grænt salat, t.d. blanda af grænkáli og klettasalati
100 g rauðrófur, bakaðar
1 eplí, lífrænt ræktað
1 appelsína
10 ml sítrónuolía til eldunar
10 ml sítrónuolía sem sett er yfir salatið
50 g ostakubbur (salatostur)
10 g pekanhnetur
Ferskt tímían eða blóðberg
Leiðbeiningar
- Byrjið á að skræla rauðrófur. Til að fá 100 g af bökuðum rauðrófum þarf um 200 g af hráum.
- Skerið rauðrófur í þunnar sneiðar eða rífið á grófu rifjárni.
- Blandið sítrónuolíu saman við rauðrófurnar og dreifði á bökunarplötu með bökunarpappír.
- Bakið í ofni við 180° C í u.þ.b. 20-30 mínútur. Takið út og kælið aðeins.
- Fjarlægið appelsínubörk og skerið appelsínu í litla bita.
- Skolið epli, kjarnhreinsið og skerið í litla bita.
- Saxið eða rífið græna salatið gróft og blandið saman við appelsínur og epli.
- Skerið ostinn smátt og blandið saman við salatið og ávextina.
- Bætið bökuðu rauðrófunum við.
- Stráið fersku tímían yfir.
- Hellið sítrónuolíu yfir,
- Saxið pekanhnetur gróft og stráið yfir.
Góð ráð
- Til að fá 100 g af bökuðum rauðrófum þarf um 200 g af hráum.
- Einn skammtur hentar sem full máltíð fyrir einn en sem meðlæti fyrir fleiri.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

