Íslenskt grænmeti og geggjuð græn sósa
Kjúklingasalat með basilíkusósu
Fjöldi skammta
4
Innihald
500 g kjúklingur (eldaður), t.d. bringa eða læri án skinns.
200 g gott grænt salat t.d. blanda af íssalati og klettasalati
180 g íslenskir pikkoló tómatar
1 paprika
300 g fersk jarðarber
80 g furuhnetur
20 g sesamfræ
100 g fetaostur (hreinn)
- Salatsósan
40 ml góð ólívuolía
3 rif hvítlaukur
0,5 tsk salt
1 pottur fersk basilíka )blöð og stilkar
2 sítrónur(safi og ysta lagið af berkinum)
20 ml hunang
Smá vatn ef þarf
Leiðbeiningar
- Byrjið á að elda kjúklinginn eða kaupið ókryddaðan tilbúinn kjúkling.
- Búið til salatsósuna með því að blanda öllu saman í góðum blandara. Mögulega þarf að bæta við smá vatni til að ná að blanda öllu vel saman. Smakkið til með hunangi og salti.
- Skerið kjúklinginn í litla bita og leggið í hluta af salatsósunni (í a.m.k. 2 klukustundir)
- Ristið furuhnetur og sesamfræ saman á pönnu. Leyfið hnetum að fræjum að kólna.
- Skerið grænmeti og jarðarber og blandið vel saman í fallegri skál.
- Bætið kjúklingnum út í.
- Skerið fetaostinn í litla bita og bætið út í.
- Stráið ristuðum furuhnetum og sesamfræjum yfir.
- Berið fram ásamt afgangnum af salatsósunni.
Góð ráð
- Það er skemmtilegast að nota íslensk jarðarber og íslenskt grænmeti í þetta sumarlega salat.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

