Fljótlegt og virkilega gott
Kjúklingalæri með grillaðri papriku og hvítlaukstómatsósu
Fjöldi skammta
1
Innihald
- Grilluð paprika
1 stk paprika
- Kjúklingur
170 g kjúklingalæri
Salt og pipar
1 rif hvítlaukur
0,5 rauður chili-pipar
1 msk olía
- Sósa
1 rif hvítlaukur
200 g tómatar í dós
50 g sýrður rjómi 10%
Salt og pipar
Leiðbeiningar
- Grilluð paprika
- Skerið papriku frá toppi og niður þannig að úr verði 3-4 sneiðar
- Leggið sneiðarnar á ofngrind með hýðið upp
- Kveikið á grillinu í ofninum og setjið grindina beint undir grillið
- Grillið þar til hýðið er vel grillað og svolítið brennt
- Takið út úr ofninum og setjið paprikuna í skál með loki. Látið bíða og kólna aðeins.
- Fjarlægið brennda hýðið af og hendið. Nú er það sem eftir er sætt og gott.
- Kjúklingur
- Kveikið á ofninum og stillið á 200° C.
- Pressið hvítlauk og blandið saman við olíu
- Saxið chili-pipar smátt og bætið í olíuna
- Veltið kjúklingalærunum upp úr olíunni, saltið og piprið. Ef tími er til þá er gott að leyfa kjúklingalærunum að marinerast í 1-2 klukkustundir.
- Setjið kjúklingalæri í eldfast mót.
- Eldið í 200° C heitum ofni í u.þ.b. 20 mínútur, eða þar til kjötið hefur náð >70°C kjarnhita.
- Sósa
- Pressið hvítlauk.
- Setjið tómata úr dós í pott ásamt pressuðum hvítlauk. Látið malla í 10-15 mínútur.
- Bætið sýrðum rjóma út í.
- Bragðbætið með salti og pipar.
Góð ráð
- Gott að bera fram með hýðishrísgrjónum eða perlubyggi og góðu salati.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

