Frábær útgáfa af þessari geggjuðu indversku sósu
Indversk Raita sósa
Fjöldi skammta
5
Innihald
250 g grísk jógúrt (léttmál)
1 hvítlauksrif (pressað)
3 sm ferskur engifer (fínt rifinn)
30 g ferskur kóríander, saxaður smátt
15 g fersk mynda, söxuð smátt
0,5 límóna (safinn og ysta lagið af berkinum)
100 g smágúrkur, rifnar gróft
0,5 tsk garam masala
Leiðbeiningar
- Setjið gríska jógúrt í skál.
- Pressið hvítlauksrif, rífið engifer fínt og blandið saman við grísku jógúrtina.
- Bætið garam masala saman við og blandið vel.
- Saxið kóríander og myntu smátt og blandið saman við.
- Rífiið smágúrkurnar gróft og blandið saman við.
- Gott að leyfa sósunni að bíða í a.m.k. klukkustund áður en hún er borin fram.
Góð ráð
- Það má nota venjulega gúrku en þá er gott að kreista svolítið af vökvanum frá áður en gúrkan er sett út í.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

