Máltíð í glasi
Grænn og góður
Fjöldi skammta
1
Að sjálfsögðu er epli í græna drykknum mínum.
Innihald
1 lífrænt ræktað epli
100 g spínatkál með stönglinum
1 lárpera (avókadó)
100 g agúrka
0,5 sítróna (safinn)
250 ml vatn
klakar eftir smekk
Leiðbeiningar
- Skolið epli, agúrku og spínatkál
- Kjarnhreinsið epli og skerið gróft
- Skerið agúrku gróft
- Takið hýðið af lárperunni og fjarlægið steininn
- Kreistið safann úr sítrónunni
- Setjið allt saman í öflugan blandara
- Bætið við klaka og vatni eftir þörfum
- Hellið í falleg glös og njótið (þessi uppskrift fyllir 2 stór glös)
Góð ráð
- Smá biti af engifer gefur skemmtilegt bragð.
- Til að gera drykkinn sætari má hafa bæta við öðru epli og hafa þá bara hálfa lárperu.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

