Notaleg haustsúpa
Grænmetissúpa með engifer og sætum kartöflum
Fjöldi skammta
1
Innihald
100 g gulrætur
100 g blómkál
50 g sellerí
1 tsk ferskt engifer (rifið)
2 pressuð hvítlauksrif
100 g sætar kartöflur
10 g grænmetiskraftur
500 ml vatn
Salt og pipar
Leiðbeiningar
- Skerið grænmeti í litla bita.
- Fjarlægið hýðið af kartöflunni og skerið í litla bita.
- Setjið öll innihaldsefni nema salt og pipar í pott og sjóðið í 15-20 mínútur.
- Maukið með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
- Smakkið til með salti og pipar.
Góð ráð
- Gott að bera fram með sýrðum rjóma, ristuðum graskersfræjum og smá fersku tímían.
- Það er gott að bæta við soðnum smjörbaunum eða kjúklingabaunum til að fá nægt prótín.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

