Tarte au citron
Frönsk sítrónubaka
Fjöldi skammta
8
Þessi sítrónubaka er eins og góður skammtur af sólskini. Uppskriftina fékk ég hjá vinkonu minni sem fékk hana hjá vinkonu sinni í Montpellier í Frakklandi. Þar er sítrónutré í garðinum og því hægt að sækja sítrónurnar beint út í garð.
Innihald
- Bökudeig
100 g smjör (við sofuhita)
80 g sykur
2 eggjarauður
170 g hveiti
2 tsk lyftiduft
Smá salt
- Sítrónumauk
3 sítrónur (safi)
2 egg
100 g sykur
40 g smjör (bráðið)
Leiðbeiningar
- Bökudeig
- Deigið er hnoðað í höndunum.
- Blandið saman smjöri og sykri.
- Bætið eggjarauðum við.
- Að lokum er hveiti, lyftidufti og smá salti bætt við og hnoðað vel saman.
- Deigið er sett í smurt hringlaga form, fallegast með bárulaga munstri á köntunum. Uppskrift fyrir 8 passar vel í 24 sm form. Deiginu er dreift þannig að það hylji botnin og kantana. Göt sett út um allt með gaffli.

- Sítrónumauk
- Hitið ofninn í 180°C á meðan sítrónumaukið er búið til.
- Takið til góða skál og písk.
- Kreistið safa úr sítrónum og blandið saman við sykur.
- Bætið eggjum við og pískið vel saman.
- Bræðið smjör og bætið því út í. Hrærið svo bara 2-3 hringi eftir það til að blanda öllu vel saman.
- Sítrónumaukinu er hellt yfir bökudeigð og allt bakað saman við 180°C í 20-25 mínútur. Gott er byrja að fylgjast með bökunni eftir 20 mínútur til að sjá þegar hún er tilbúin.
Góð ráð
- Það má líka rífa svolítið af sítrónuberki (bara ysta lagið) og bæta í sítrónumaukið.
- Bökuna má bera fram með rjóma en mér finnst hún bragðast best án rjóma en með tebolla eða glasi af góðu kampavíni.
Varstu að prófa þessa uppskrift?
Ef þú tekur mynd og póstar á Instagram, þá máttu endilega merkja myndina með @godur_kostur og nota myllumerkið #góðurkostur
Má bjóða þér að fylgja mér á Facebook?
Þú finnur mig hér Góður kostur

